Ódýrari og hollari matur er varla á boðstólum
Í dag er síðasta tækifæri til að ná sér í slátur eða annan innmat í Slátursölu Norðlenska á Höfn. Unnur Guðmundsdóttir sem séð hefur um slátursöluna í haust segir að mikil sala sé búin að vera alveg frá byrjun sláturtíðar. ,,Það hefur verið lengur opið núna en áður, það er bara fullt að gera alla daga og mér finnst búið að vera mikið meiri sala en sl.haust,? segir Unnur. Hún segir að það sé ekki bara þeir sem komnir eru á miðjan aldur og þar yfir sem kaupa slátrum, unga fólkið stendur sig vel í þessum matarkaupum og býr til slátur. Algengt er að keypt séu 5 - 10 heil slátur og svo eru einnig margir sem kaupa bara hluta slátursins s.s. lifur hausa eða annan innmat. Verð á heilum slátrum er 645 kr. hjörtu kr.199 og lifur 189 kr. Ódýrari og hollari matur er varla á boðstólum ásamt því að vera auðveld matargerð sem einnig býður uppá fjölbreytni.
Ekki hefur verið hægt að fá vambir hér í haust en þess í stað hefur slátursalan verið með gervi keppi til sölu. Vambakeppir munu hafa fengist m.a. hjá slátursölu á Kirkjubæjarklaustri og sláturmarkaði Hagkaupa í Reykjavík svo að þeir sem alls ekki vilja annað en ekta vambakeppi hafa getað pantað þá og bjargað sláturgerðinni .
Sauðfjárslátrun í sláturhúsinu á Höfn er í haust á vegum Norðlenska á Húsavík.





Skrifa athugasemd