Ásgrímur Halldórsson kemur inn í dag með rúm 300 tonn af síld
Góð síldveiði var hjá bátum Skinneyjar Þinganess um helgina. Áskell landaði rúmlega 400 tonnum í gær, Jóna Eðvalds var með 210 tonn og Ásgrímur Halldórsson kemur inn í dag með rúm 300 tonn af síld. Síldin veiðist útaf Reyðarfirði. Sverrir Aðalsteinsson segir að unnið sé á vöktum í síldinni allan sólarhringinn. Fullmannað er við síldarvinnsluna en Sverrir segir að samt sé hægt að bæta við fólki. Línubátar hafa aflað vel og veiði netabáta hefur verið þokkaleg en lélegt hjá handfærabátum. Nýjasta skip Skinneyjar Þinganess, Hvanney er farin á net og hefur hún fengið góðan afla.
Hafdís Sf 75 er lögð af stað í sína síðustu sjóferð og er væntanleg til Grenaa í Danmörku aðfaranótt miðvikudagsins nk. þar sem hún fer í klippingu, þ.e. brotajárn.
Ekki voru valdir neinir viðvaningar í áhöfn skipsins í þessari síðustu ferð þess, skipstjóri er Ingólfur Ásgrímsson, Birgir Sigurðsson stýrimaður,vélstjórar Björn Gunnlaugsson og Örn Arnarson og loftskeytamaður er Þór Halldórsson.





Skrifa athugasemd