Október
Ingólfur Baldvinsson hjá Vöruflutningardeild KASK
KASK Ingólfur Baldvinsson
Ingólfur Baldvinsson með kartöflur sem eru tilbúnar til að senda á markað

22.10.2004 Október

Óvenju mikið flutt af kartöflum í stórmarkaðina í Reykjavík

Vöruflutningar til og frá Hornafirði eru nú nær eingöngu með flutningabílum ef undan eru skildir olíuflutningar og frystir fiskafurðir sem fluttir er með skipum. Flutningadeild Kask er með 3 flutningabíla í föstum ferðum milli Hafnar og Reykjavíkur alla virka daga nema meðan flutningar sláturfjár standa yfir þá sinnir einn bíllinn þeim flutningi.
Það hefur verið mikið um aukaferðir með gáma og fleira alveg frá áramótum og bara fullt að gera segir Ingólfur Baldvinsson hjá flutningadeildinni. Með því helsta sem við flytjum er saltfiskur bæði frá Skinney Þinganesi og Bestfiski, svo hefur verið óvenjumikið flutt af kartöflum í stórmarkaðina í Reykjavík undanfarið t.d. fóru um 60 tonn af nýjum kartöflum í ágúst. Frá Reykjavík er stærsti farmurinn vörur til byggingavörudeildarinnar, fiskvinnslustöðvanna og verslana á staðnum.

Ingólfur segir að ferðum pakkabíla út um sveitirnar hafi verið hætt vegna ónógs verkefnis en pakkar sendir með flutningabílunum eftir því sem hægt er og til Djúpavogs fer sendiferðarbíll þrisvar í viku. Starfsmenn hjá flutningadeild Kask eru tíu.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica