Hornfirska skemmtifélagið með DISKÓ á Broadway
Næstkomandi föstudag mun Hornfirska skemmtifélagið sýna skemmtidagskrá sína, DISKÓ á veitingahúsinu Broadway í Reykjavík. Sýningin hefur vakið mikla athygli og hefur hver sýningin á fætur annarri verið uppseld. Í sýningunni flytja sjö söngvarar og fimm manna hljómsveit alla heitustu diskósmellina sem hljómuðu í Hollywood við Ármúla og fleiri stöðum á diskótímanum. Þetta eru lög sem allir þekkja í flutningi diskódrottninganna Donnu Summer, Tinu Charles og Gloriu Gaynor og að sjálfsögðu eru Bee Gees, Boney M, Abba og fleiri með í pakkanum. Hljómsveitin KUSK leikur á stórdansleik að sýningu lokinni og hefur sveitin aldrei verið þéttari. Fyrir sýninguna á Boradway leika BG og BJARTUR, en það eru þeir Björn Gylfason, Gunnlaugur Sigurðsson og Bjartur Logi Finnsson.
Söngvarar í sýningunni eru Birgir Fannar Reynisson, Edda Bjarnadóttir, Hulda Rós Sigurðardóttir, Kristjón Elvarsson, Maríanna Jóhannsdóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir, og Þórhildur Magnúsdóttir. Leikstjóri er Kristín Gestsdóttir og tónlistarstjóri er Heiðar Sigurðsson. Skemmtifélagið vill benda fólki á að panta miða sem fyrst á Broadway, bæði mat og einnig þá sem ætla á skemmtun og dansleik. Miðasalan er opin frá 11-19 alla virka daga og síminn er 533 1100.





Skrifa athugasemd