Október
Samverustund 6.bekkur
Samverustund 6.bekkur
Foreldrar og nemendur 6.bekkjar héldu samverustund þar sem farið var m.a. í leiki
Mynd 2 af 2
1 2

18.10.2004 Október

Foreldrar og nemendur 6.bekkjar héldu samverustund

Þrátt fyrir kennaraverkfall þessa dagana létu foreldrar og nemendur í 6.bekk Hafnarskóla það ekki á sig fá og héldu sínu striki síðastliðinn laugadag og héldu samverustund. Í blíðskaparveðri var lagt af stað frá Lónsafleggjaranum og stefnan tekin á Papós. Ætlunin var að ganga áleiðis að ósnum og skoða tóftir sem eru á svæðinu. Nesti var að sjálfsögðu með og eftir góða göngu var tekið til við að næra mannskapinn og síðan var farið í leiki. Í bakaleiðinni var gengið meðfram fjallinu og margt að sjá. Meðal þess sem skoðað var eru leifar af myndsetti fyrir kvikmyndina Bjólfskviðu sem verið var að taka upp hér síðsumars. Svæðið okkar hér í Hornafirði hefur uppá svo margt að bjóða og segir það okkur að leita ekki langt yfir skammt að sækja skemmtun og útivist.

Það eru ótrúlega margir fallegir og aðgengilegir staðir hérna í næsta nágrenni þar sem hægt er að njóta útivistar og fallegrar náttúru.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica