Október
Golfvöllurinn skartar sínu fegursta
Golfvöllurinn skartar sínu fegursta

15.10.2004 Október

Bændaglíma hjá á Golfklúbbi Hornafjarðar um helgina.

Um helgina gefst félögum í Golfklúbbi Hornafjarðar kostur á að taka þátt í síðasta móti ársins, ef frá er talið mót sem haldið hefur verið á gamlársdag og verður væntanlega einnig nú, ef veður leyfir. Mótið um helgina kallast bændaglíma og felst leikurinn í því að skipaðir eru tveir bændur sem síðan velja sér liðsmenn sem keppa sín á milli og það lið sem kemur út með best skor vinnur. Haldi menn að bændaglíma sé bara fyrir karla er það misskilningur, hún er ekkert síður fyrir konur. Að loknu mótinu býður golfklúbburinn mótsgestum uppá kjötsúpu eins og hún gerist best og er matreiðslumaður Vífill Karlsson. Guðný Helgadóttir formaður golfklúbbsins segir að svipaður fjöldi golfara hafi komið á völlinn í sumar og var sl.ár en það besta var hvað veðrið hafi verið ótrúlega gott. Í sumar var byrjað með mótaröð sem alltaf var spiluð á miðvikudögum og var þátttaka góð. Ekki var mikil fjölgun kvenna í golfinu í sumar en Guðný segist sjá fram á fjölgun kvenna næsta sumar.

Eins og fram kom hér á vefnum sóttu nokkrar kindur stíft inn á golfvöllinn í sumar, komu jafnharðan og þær voru reknar burt, og skemmdu grínin sem sáð hafði verið í og höfðu ráðamenn vallarins hótað að kindunum yrði slátrað ef þær yrðu ekki fjærlægðar endanlega.. Ekki kom þó til slátrunar því málið leystist farsællega og Guðný vildi taka fram að kjötsúpan um helgina ætti ekkert skylt við þessar vallar-rollur.
Mótanefndin hvetur alla félaga að mæta á völlinn n.k. sunnudag kl.15:00 og taka þátt í skemmtilegri keppni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica