Október
Rannveig Einarsdóttir
Rannveig Einarsdóttir
Rannveig Einarsdóttir mun taka að sér leiðbeinandahlutverk á námskeiðinu.

15.10.2004 Október

Svæðisskrifstofa Suðurskóga flytur í Nýheima

Suðurskógar hafa fengið aðstöðu og opnað svæðisskrifstofu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum. Rannveig Einarsdóttir, sem er svæðisstjóri fyrir suðausturland, er mjög ánægð með aðstöðuna í ,, landbúnaðarhorninu?, þar sem hún er við hliðina á búnaðarsambands-skrifstofunni. Aðspurð segir Rannveig að starf svæðisstjóra sé m.a. að skrá og kortleggja allt sem gert er í skógrækt á svæðinu. Skrá þarf nákvæmlega allar plöntur sem gróðursettar eru, allt frá fræinu sem hefur sitt númer, hvar og hvenær það var sett niður. Þetta er gert til, ef þarf einhverra hluta vegna, að hægt sé að leita upprunans hvort sem það þarf vegna ágætis eða lélegs árangurs í ræktuninni. Skógrækt gekk vel í sumar þó eitthvað hafi orðið vart við grasmaðk og jarðyglu. Rannveig á ekki von á að neinn met vöxtur hafi orðið þar sem miklir þurrkar hafi verið og dregið úr vexti trjáa.

Áður en vetur gengur í garð þarf Rannveig að heimsækja alla skógræktarbændur á svæðinu, en þeir eru 22, til að skoða og skrá það sem þeir hafa gert í skógrækt í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica