Október
Þorsteinn Haukur Þorsteinsson tollfulltrúi í Landakirkju
Þorsteinn Haukur Þorsteinsson tollfulltrúi í Landakirkju
Þorsteinn Haukur Þorsteinsson tollfulltrúi heimsótti einnig fermingarbörnin í Landakirkju
Mynd 2 af 2
1 2

13.10.2004 Október

Þorsteinn Haukur tollfulltrúi og hundurinn Bassi með fyrirlestur um skaðsemi fíkniefna í Hafnarkirkju

Á morgun fimmtudaginn 14. október heimsækja Þorsteinn Haukur Þorsteinsson tollfulltrúi og fíkniefnaleitarhundurinn Bassi Hornfirðinga og nærsveitunga. Þorsteinn Haukur hefur undanfarin ár haft það sem hluta af sínu starfi á vegum tollgæslunnar að fræða börn og unglinga um þann vágest sem fíkniefni eru í nútímaþjóðfélagi en s.l. vetur fengu 97% fermingarbarna á landinu heimsókn frá Tollgæslunni í Reykjavík með fræðslu um skaðsemi fíkniefna. Þorsteinn Haukur er skemmtilegur fyrirlesari og er ekkert að skafa utan af hlutunum og það sem hann hefur að segja á erindi við bæði unga sem aldna. Á ferðum sínum um landið hefur hann fíkniefnaleitarhundinn Bassa sér til fulltingis, Bassi hefur gert mörgum smyglaranum lífið leitt á farsælli starfsæfi hjá tollstjóraembættinu enda með þeim færustu á sínu sviði.

Þorsteinn Haukur heldur um klukkustundarlangan fyrirlestur í Hafnarkirkju, sem hefst kl. 20.00 og mun hann færa fermingarbörnum margmiðlunardisk að gjöf frá Tollgæslunni. Fyrirlestur þessi er hluti af fermingarfræðslunni og eru fermingarbörn því skildug til að mæta. Foreldrar fermingarbarna eru einnig hvattir til að mæta og hlýða á skemmtilegt erindi um alvarlega hluti. Fundurinn er einnig opinn fyrir alla sem hafa áhuga og er aðgangur ókeypis

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica