Landsýn, hornfirska ferðaþjónustan í Noregi
Hornfirðingarnir, hjónin Ófeigur Jóhannesson (Bjössi) og Birna Ingólfsdóttir ásamt fjölskyldu þeirra , sem opnað hafa ferðaþjónustuna Landsýn í Noregi og selja ferðir til Íslands, tóku þátt í mikilli sýningu um helgina þar sem þau kynntu land og þjóð. Af þessu tilefni hafði vefurinn samband við þau til að fá fréttir af þessu framtaki þeirra. Við í Landsýn erum byrjuð okkar markaðssetningu hérna í Noregi segir Birna, við vorum þátttakendur í sýningu í miðborg Oslóar um helgina, þar kynntum við starfsemi Landsýnar og þá möguleika sem Island hefur uppá að bjóða. Það væri skömm að segja að Norðmenn hefðu ekki áhuga á Islandi. Við fengum ótrúlega góðar viðtökur en margir höfðu verið í stuttri heimsókn á Íslandi og ætluðu aftur þangað og þá í lengri tíma. Við vorum með myndasýningu frá Jökulsárlóninu ( myndirnar fengum við frá hornafjorður.is) og Vatnajökli ásamt fleiri landslagsmyndum. Við vorum einnig með myndir frá Lónsöræfum og vöktu þær ómælda eftirtekt sýningargesta.
Það má segja að oft var þröng á þingi við sýningarbásinn okkar. Hin ótrúlega litadýrð í austfirskum fjöllum og svarti sandurinn ásamt jöklinum var það sem vakti mikla athygli gesta. Fólk spurði um fiskveiði, hestaleigur, golf ,gistingu, fjallaferðir, jöklaferðir og gönguferðir. Flestir okkar viðmælenda þekkja Bláa Lónið, Gullfoss, Geysir og Reykjavik, en fæstir höfðu heyrt um Skaftafell, Jökulsárlón eða Vatnajökul. Við vorum því áköf í að kynna heimahagana og vonumst til að hafa aukið þekkingu viðmælenda okkar á því landshorni. Það voru því stoltir Hornfirðingar sem fóru heim eftir langan og skemmtilegan dag.
Birna og Bjössi segja að samkeppnin sé hörð um norska ferðamenn. Fjárhagur norðmanna er mjög góður, næstum sá besti í heiminum. Fleiri ferðast til útlanda í lengri eða skemmri ferðir. Þetta hafa önnur ferðamannalönd komið auga á og gera mikið til að fá norðmenn í heimsókn, þeir lokka með sól, hita og lágu verði.
En við í Landsýn teljum að við höfum uppá að bjóða flotta afurð, fallegt land og gestrisið fólk og stefnum ótrauð á sigur í þessum ferðamannaslag.
Hvað kom þeim hjónum til að fara út í sölu á Íslandsferðum?
Upphafið er kannski að við fengum svo margar fyrirspurnir um Island og um að baða í heitum hverum og um Íslenska hestinn. Okkur fannst tilboðin á ferðum vera ansi einhæf. Litla upplýsingar um landsbyggðina, höfum hitt fólk sem hefur verið á ferðalagi í viku og bara keyrt suðurlandið og ekki farið lengra, svo okkur langaði til að kynna aðra landshluta. Skaftafellssýslu, Snæfellsnes, Vestfirði og fl. Vonandi getum við stuðlað að auknum ferðamannastraum út á land allt árið. Það eru líka margir spennandi hlutir að gerast. Það er alltaf að verða ódýrara að fljúga til Íslands og svo er Internetið orðið stór upplýsingarmiðill. Margir leita eftir upplýsingum á netinu og þar ætlum við að vera með okkar sölu.Ég vil því hvetja alla ferðafrömuði að huga vel af heimasíðum og hafa handbærar upplýsingar og myndir á síðunum. Því það er framtíðin!!!!
Hérna í Noregi hefur verið aukning af komu ferðamanna til landsins eftir nokkur
mögur ár segir Bjössi. Hér hjálpast að ódýrara flug og aukin markaðsetning á interneti. En ferðamannabransinn er nervös þessa dagana því að einhverjum ágætu mönnum datt í huga að selja veiðileyfi á sel og nú ganga myndir af stóreygðum selkópum heimshorna á milli. Ferðamálaráð Noregs er með áhyggjur af að þetta muni hafa mjög neikvæð áhrif á ferðamannastraum næsta sumar. Þetta segir okkur hversu lítið þarf til að öflug markaðsstarf geti horfið bara fyrir svona klaufaskap.
Birna segir að þeim líki öllum vel í Noregi og séu ekki á leiðinni heim næstu árin. Börnin okkar og tengdadóttirin eru með okkur í ,,Landsýn? og allir hjálpast að, eins fáum við góða aðstoð frá vinum og vandamönnum.
Við viljum koma á framfæri þakklæti til hornafjorður.is fyrir frábæra fréttasíðu. Við setjumst niður á hverjum degi og lesum hornið og hornafjorður.is Einnig hafa báðar þessar fréttasíður verið hjálplegar með að lána okkur myndir af síðunum sínum, sem við síðan notum til kynngar á Hornafirði segja Bjössi og Birna og þau senda Hornfirðingum bestu kveðjur.





Skrifa athugasemd