Diskósýning og pizzuveisla 8.-10. bekkur
Þrykkjan og Hornfirska skemmtifélagið er með unglingasýningu ( 8.-10. bekkur) á diskófárinu LET'S BOOGIE BABY á Hótel Höfn næsta fimmtudagskvöld kl. 21:00 ef næg þátttaka fæst. Á sýninguna og veisluna kostar 1700 krónur. Þetta er tónlistarlegt tímabil sem eflaust er forvitninlegt fyrir unglingana að upplifa og einnig má geta þess að í sýningunni er að finna fjóra söngvara sem komið hafa við sögu í söngvarakeppni Þrykkjunnar í gegnum árin þær Eddu Bjarnadóttur og Huldu Rós Sigurðardóttur sem sigruðu á sínum tíma og Sigríður Bára sem nú er starfsmaður Þrykkjunnar og ekki skal gleyma Þrykkjupeyjanum Birgi Fannari sem söng og spilaði á trommur þar.
Verið er að kanna þátttöku og eru þeir sem eiga eftir að skrá sig vinsamlegast beðnir að hafa samband við Sindra í 846-0161 eða Hauk í 897-8885 fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 12.október.





Skrifa athugasemd