Október
Fjöldi manns mætti til að fagna við Almannaskarð
Fjöldi manns mætti til að fagna við Almannaskarð
Fjöldi manns mætti til að fagna við Almannaskarð þegar sprengt var í gegn (úr myndasafni)

11.10.2004 Október

Búið að sprengja síðasta spottann undir Almannaskarð

Á föstudaginn sprengdi samgöngumálaráðherra Sturla Böðvarsson síðasta spottann í göngunum undir Almannaskarð. Fjöldi manns mætti til að fagna þessum áfanga og þegar búið var að hreinsa grjótið eftir síðustu sprenginguna var gestum boðið í rútuferð inn í göngin. Þar voru fluttar ræður og farið var yfir framkvæmdina sem hefur gengið ótrúlega vel. Framkvæmdir á verkstað hófust í lok mars 2004 við aðstöðusköpun og gröft á lausu efni í forskeringu að sunnanverðu. Í byrjun maí hófst borun fyrir sprengingum á föstu bergi í forskeringu að sunnanverðu og var þeim greftri lokið í byrjun júní. Verktaki hóf vinnu við bergstyrkingar á munnastáli að sunnanverðu þann 6. júní og þann 16. júní tendraði samgönguráðherra fyrstu formlegu jarðgangasprenginguna að viðstöddum fjölda gesta.

Vinna við gröft á lausu efni í forskeringu að norðanverðu hófst í lok apríl og borun fyrir sprengingum á föstu efni hófst í byrjun júní. Greftri forskeringar að norðan var að fullu lokið í fyrri hluta júlí. Þar voru sprengdar tvær stuttar færur í göngum í júli og ágúst. Göngin hafa að öðru leyti öll verið unnin sunnanfrá. Byrjað var á framkvæmdum við vegskála að norðanverðu í síðari hluta júlí. Fyrstu undirstöður voru steyptar um miðjan ágúst og fyrsta yfirbygging þann 10. september.Við gangagerðina hefur verið unnið á tveimur 10 tíma vöktum og á hverri vakt eru fimm menn auk verkstæðismanns, steypusprautara og bílstjóra sem keyra efninu út úr göngunum. Allt efni sem kemur úr göngum er notað til vegagerðar.
Gangagröfturinn hefur gengið mjög vel allan tímann þrátt fyrir misjafnar jarðfræðilegar aðstæður. Þörf hefur verið á umtalsverðum bergstyrkingum þ.e. sprautusteypu og bergboltum. Samkvæmt upprunalegri verkáætlun verktaka var gegnumbrot fyrirhugað í febrúar á næsta ári. Þegar ljóst var orðið hversu verkið gekk vel var þeirri áætlun breytt og gert ráð fyrir gegnumbroti um miðjan nóvember. Gangagröfturinn er því verulega á undan áætlun.
Nú hefst eftirvinna í göngunum sem stendur yfir í allan vetur þ.e. vinna við endanlegar bergstyrkingar, vatnsklæðningar, frárennsliskerfi og lagnir, vegagerð og uppsetningu búnaðar. Gert er ráð fyrir að göngin verði tekin í notkun fyrri hluta næsta sumars.

Helstu upplýsingar og magntölur
Heildarlengd ganga eftir gegnumbrot er 1.150 m. Samkvæmt hönnunarsniði er rúmmál ganga um 63.000 m3 en áætla má að með yfirbroti hafi alls verið sprengdir um 70.000 m3 af föstu bergi. Við gangagröftinn eru að jafnaði notuð um 1,6 kg af sprengiefni á hvern rúmmetra bergs og hafa því um 112 tonn af sprengiefni verið notuð við verkið. Hver sprengifæra er um 5 m löng og alls hafa verið sprengdar 230 sprengifærur. Til bergstyrkinga hafa alls verið notaðir um 3.200 bergboltar (3 til 5 m langir) og 1.850 m3 af sprautusteypu með stáltrefjum.
Aðalverktaki við verkið er Héraðsverk ehf. og norska fyrirtækið Leonhard Nilsen & Sönner AS. Undirverktaki við vegskálabyggingar er G. Þorsteinsson ehf. frá Höfn. Alls starfa nú um 50 manns við framkvæmdirnar.
GeoTek ehf. sér um framkvæmdaeftirlit fyrir Vegagerðina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica