Beinskeyttar umræður um uppbyggingu þjóðgarðsins
Kynningarfundur Hrollaugsstöðum
Á fundi með umhverfisráðherra í Hrollaugsstöðum í gær var kynnt ný reglugerð um Skaftafellsþjóðgarð þar sem fjallað var um Lakagígasvæðið og umferð á Vatnajökli. Fundinn sátu um 20 manns og fram fóru beinskeyttar umræður um uppbyggingu þjóðgarðsins. Fram kom að væntingar heimamanna til verkefnisins eru miklar, gagnrýnt var að markmiðssetning með stækkun þjóðgarðsins væri ekki nógu skýr og brýnt væri að nægir fjármunir fylgdu verkefninu til að hægt væri að hefjast handa um nauðsynlegar framkvæmdir. Fyrstu skrefin að mati heimamanna eru að ákveða og bæta aðgengi að jöklinum, koma upp merkingum m.a. með það að markmiði að auka öryggi og þekkingu þeirra sem um jökulinn fara á eigin vegum. Umhverfisráðherra skýrði frá að í athugun væri að amk. tvær jarðir eða jarðarhlutar yrðu teknar inn í þjóðgarðinn á næsta ári þ.e. land ríkisjarðarinnar Flateyjar á Mýrum og hluti af jörðinni Skálafell 1 í Suðursveit, samkvæmt óskum landeigenda þeirrar jarðar. Kom fram í máli hennar og ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytisins að vel kæmi til greina að jarðir í einkaeign teldust til þjóðgarðs ef landeigendur sæju sér hag í því enda leyfilegt samkvæmt núgildandi lögum.
Fundarmenn lögðu mikla áherslu á aðkomu heimamanna að starfsemi og framkvæmdum í þjóðgarðinum og að á meðan lögum væri ekki breytt um stjórnun þjóðgarða fengi ráðgjafarnefnd um Skaftafellsþjógarð aukið vægi og sérstakt erindisbréf. Þegar að stofnun hins eiginlega Vatnajökulsþjóðgarðs kemur vilja heimamenn eiga beina aðild að stjórnun hans. Einnig lögðu heimamenn áherslu á að verndun náttúru, umhverfis og menningarminja væru mikilvæg markmið en fyrst og fremst með það að leiðarljósi að nýta þessar auðlindir okkar til framdráttar fyrir atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Í drögum að reglugerð og umræðum á fundinum kom fram að ekki á að hefta hefðbundna atvinnustarfsemi á jöklinum eða friða fyrir beit á Lakagígasvæðinu og talið mikilvægt að hefðbundin atvinnustarfsemi sé innan hins nýja þjóðgarðs. Einnig kom fram hjá fundarmönnum að sú uppbygging sem hafin er hér heimafyrir tengist í raun beint uppbyggingu og verkefnum Vatnajökulsþjóðgarðs, þar má nefna uppbyggingu Jöklaseturs og Þórbergsseturs, gönguleiðaverkefni og merkingu gönguleiða, og einnig starfsemi á vegum fuglaáhugamanna og uppbygging gestastofu í Skaftafelli.





Skrifa athugasemd