Október
Jóna Eðvalds SF-200 og Áskell EA-48
Jóna Eðvalds SF-200 og Áskell EA-48
Jóna Eðvalds SF-200 og Áskell EA-48 við nýju bryggjuna við Skinney-Þinganes

07.10.2004 Október

Samningur við útgerð Áskells EA um löndun síldar hjá Skinney

Síðustu dagar hafa verið vindasamir en nú er komið fegursta veður, svo til logn og hiti aðeins yfir frostmarkinu. Í morgun voru nær allir Hornafjarðarbátar farnir á sjó eftir ógæftir undanfarna daga. Vignir Júlíusson á hafnarvoginni sagði að fiskirí hefði verið frekar rólegt undanfarið þá sjaldan hafi gefið til veiða. Skinney Þinganes hefur tekið á móti 1100 tonnum af síld það sem er þessari vertíð. Jóna Eðvalds og Áskell EA 48 sem er systurskip Jónu Eðvalds, fengu síldina á Halamiðum. Gerður hefur verið samningur til fimm ára við útgerð Áskells um löndun síldar hjá Skinney Þinganesi. Í dag er Áskell að veiðum á halanum en Jóna Eðvalds er að leita síldar út af austfjörðum en sú leit hefur lítinn árangur borið enn sem komið er.

Búið er að leggja gömlu Hvanney í ,,krókinn? eins og Sverrir Aðalsteinsson orðaði það, og ekki vitað enn hvað býður hennar. Hafdísi SF verður siglt til Danmerkur þegar veður leyfir en hún hefur verið seld í brotajárn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica