Fullt hús á Diskó-sýningunni á Hótel Höfn
Um síðustu helgi var fullt hús á Diskó-sýningunni á Hótel Höfn og var flytjendum þar vel fagnað. Þetta var alveg frábært og fólk skemmti sér mjög vel, sagði Óðinn Eymundsson einn hóteleigenda. Alls taka 17 manns þátt í sýningunni sem gengur út á diskó-tónlist og diskó-stemninguna eins og hún gerðist best hér á árum áður og flytjendur eru klæddir samkvæmt því sem fylgdi diskó-tískunni um 1980. Matseðillinn er í anda diskótímabilsins þar sem forréttur er diskókúla, aðalréttur lambalæri bernease og eftirréttur kaffi og konfekt. Uppselt er á sýninguna um næstu helgi en eitthvað óselt fyrir sýninguna sem verður 16. október.
Að þeim sýningum loknum verður ein á Broadway og hvert framhaldið verður svo fer eftir aðsókn. Hótel Höfn býður uppá helgarpakka í sambandi við sýningarnar og hafa þeir verið vinsælir.





Skrifa athugasemd