Október
Hljómsveitin Skítúr á fullri keyrslu
Hljómsveitin Skítúr á fullri keyrslu (úr myndasafni)

06.10.2004 Október

Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar

Fréttatilkynning

Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar liggur nú fyrir fram að áramótum. Næsti viðburður í tíma er hið árlega sundstuð í Sundlaug Hafnar sem fer fram á fimmtudagskvöldið, síðan rekur hver viðburðurinn annan. Í október má nefna m.a. Lan-diskósýningu-Fjarðaball-hæfileikakeppni, íþróttamót-Þrykkjurokkstónleika. Í nóvember er m.a. Hrekkjavakan (draugahúsið) -IDOLIÐ-kassaklifur-extreme diskó-söngvakeppni og ball með hljómsveit-íþróttamót, í desember verður íþróttamót, Jólabingó og Jólapakkaball. Unglingum er bent á að kynna sér dagskrána í Þrykkjunni og einstakir viðburðir eru alltaf auglýstir á SkjáVarpinu. Segja má að endanlega hafi dagskráin verið mótuð á vinnufundi Þrykkjuráðs og starfsmanns í Araseli um helgina. Á hverjum miðvikudegi er sameiginlegur fundur unglinganna í Þrykkjuráði og starfsmönnum. Þá er klúbbastarf að fara í gang.

Þrykkjan er opin á mánudags, miðvikudags og föstudagskvöldum fyrir 8.-10. bekk og á þriðjudögum fyrir 6.og 7. bekk. Þá er FAS boðið upp á fimmtudagskvöldin. Starfsmenn og Þrykkjuráð hvetur unglingana að kíkja í Þrykkjuna og taka þátt í því sem í boði er. Allir í góðu skapi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica