Október
Kynningafundir um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs
Stækkun Þjóðgarðsins í Skaftafelli var tilkynnt formlega og við hátíðlega athöfn í Skaftafelli 12. september sl. Til að fylgja málinu eftir mun nýskipaður umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir ásamt samstarfsfólki halda kynningar og samráðsfundi að Hrollaugsstöðum fimmtudaginn 7. október kl. 20:30 og á Hótel Höfn föstudaginn 8. október kl. 12:00. Annars vegar verður rætt um reglugerð fyrir þjóðgarðinn eins og hann verður eftir stækkun og hins vegar tillögur sem fram koma í skýrslu um Vatnajökulsþjóðgarð sem ná mun yfir allan jökulinn.
Er vonast eftir að heimamenn sem láta sig málið varða mæti til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.





Skrifa athugasemd