Október
Fóstra með sitt 10. lamb  @Eyrún Halla
Fóstra með sitt 10. lamb @Eyrún Halla
Fóstra með sitt 10. lamb @Eyrún Halla

04.10.2004 Október

Óvenjulegur sauðburðartími

Það fer að verða árlegur viðburður fyrir Ragnheiði Magnúsdóttur bónda á Svínafelli í Öræfum að ær hennar beri að haustinu. Fyrir nokkrum dögum bar ærin Fóstra svörtum hrút sem dafnar vel. Þann 20. ágúst bar gömul ær tveim lömbum og var það eins með hana í fyrra, þá bar hún í lok sept. sem varð henni til lífs því þá hafði verið ákveðið að lóga henni en að sjálfsögðu fær hún nú að lifa og hugsa um lömbin sín sagði Ragnheiður. Svona óreglulegur sauðburður er ekki óvenjulegur hjá Ragnheiði því í fyrra báru þrjár ær í ágúst og ein í september og þrjár þeirra eignuðust aftur lömb í vor.

Allar göngur í Öræfum eru búnar og eru heimtur góðar, og segir Ragnheiður að féð sé í meðallagi vænt en hún telur að miklir þurrkar í sumar valdi því að féð er ekki vænna eftir svona langt og gott sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica