Október
Árni Rúnar Þorvaldsson kennari
Árni Rúnar Þorvaldsson kennari
Árni Rúnar Þorvaldsson grunnskólakennari skipar fyrsta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar á Hornafirði.

01.10.2004 Október

Við viljum að hvergi verði kvikað frá kröfum

Stjórn KSA, kennarasambands Austurlands kom saman í gær út af verkfallinu og hefur hún þungar áhyggjur af ástandinu. Á fundinum kom fram fullur stuðningur við samninganefnd kennara og kennarasamband Íslands og var þeim tillögum beint til stjórna þeirra að hvika hvergi frá settum markmiðum. Árni Rúnar Þorvaldsson sem er kennari við Heppuskóla, segir að kennarar séu orðnir langeygir eftir lausn kennaradeilunnar en eru samt harðir á að ekki eigi að skrifa undir neina skammtímasamninga eða einhverja samninga sem þeir geti ekki sætt sig við. ,,Við viljum að hvergi verði kvikað frá kröfum heldur haldið áfram eins og talað var um? segir Þorvaldur.

Kennarar á Höfn hittast alla virka daga milli kl.10 ? 11 í húsi Vökuls á Víkurbrautinni og segir Þorvaldur að langflestir kennarar mæti þar og það sé mikill samhugur hjá þeim.
Engin verkfallsbrot hafa komið upp hér á Hornafirði en auðvitað eru skiptar skoðanir manna um verkfallið og hann heldur að fólk almennt sýni þessu skilning.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi stjórnar Kennarasambands Austurlands 30. september 2004:
Stjórn KSA lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefnd FG og beinir þeim tilmælum til hennar að hún hviki hvergi frá settum markmiðum.
Nú hafa kjarasamningar grunnskólakennara verið lausir í sex mánuði. Þessi staða er með öllu óviðunandi og af þeim sökum hefur verkfallsvopninu verið beitt sem er algjört neyðarúrræði. Stjórn KSA telur mikilvægt að Launanefnd sveitarfélaga og pólitískt kjörnir borgar ? og bæjarfulltrúar geri sér grein fyrir því að þessir samningar sem nú er barist fyrir skipta sköpum fyrir framtíð kennarastarfsins. Ef ekki verður komið til móts við kröfur kennara hefur stjórn KSA af því þungar áhyggjur að brostið geti á atgervisflótti úr stéttinni. Grunnskólakennarar eru orðnir langþreyttir á stöðu mála og vilja sjá breytingar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica