Málþing með ungu fólki á Hornafirði
Fréttatilkynning Úfff - hópurinn
Þann 8. september s.l.var haldið málþing með ungu fólki hér á Hornafirði sem bar yfirskriftina Ungt fólk, fjör og framtak skammstafað Úfff. Málþingið kom í kjölfar fjölbreyttrar dagskrár þar sem í boði voru góð sýnishorn um frumkvæði ungs fólks, sem sýndu hverju hægt er að áorka sé vilji, orka, ástundun og úthald til staðar.
Á málþinginu var reynt að horfa til félags- og menningarlífs ungs fólks á aldrinum 16 ? 25 ára á Hornafirði. Góðir gestir fluttu framsögur á málþinginu. Má þar nefna nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, Fjölbrautarskóla Suðurlands, H-húsinu í Hveragerði og fjallað var um jaðaríþróttir. Um þingsetningu sá Bergþóra Ágústsdóttir þáverandi formaður nemendaráðs FAS og kynnir var María Erla Maack fjöllistakona. Ráðstefnustjóri var Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS.
Ráðstefnusalur Nýheima var þétt setinn ungu fólki og öðrum sem áhuga höfðu á málefnin. Í fundarhléi tók Hulda R. Sigurðardóttir nemandi í FAS lagið við góðar undirtektir. Eftir hlé var fundarfólki skipt upp í hópastarf þar sem reynt var að rýna í kosti og galla menningar- og félagslífs ungs fólks. Síðan voru niðurstöður hópanna kynntar og kom þar margt athyglivert fram sem full ástæða er til að skoða nánar. Að kvöldi ráðstefnudags var komið saman í Nýheimum og slegið á létta strengi m.a. annars sýnd bíómyndin Epíð sem var gerð af ungum Hornfirðingum þeim Hlyni Pálmasyni og Daníel Imsland.
Eftir að málþingi lauk hefur undirbúningshópurinn, sem skipaður er fulltrúum frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, HÚS-hóp, Leikfélagi Hornafjarðar, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Nemendafélagi FAS, Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og Æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar haldið fund og borið saman bækur sínar um framhaldið. Á fundinum var ákveðið að auglýsa eftir starfsmanni í hlutastarf til að vinna með ungu fólki í menningar- og félagsmálum þess. Ákveðið var að halda áfram að hittast til að vinna nánar úr niðurstöðum.
Það er ljóst að ungt fólk á að láta til sín taka í menningar- og félagslífi ungs fólks hér á Hornafirði sem og annarsstaðar. Hafa frumkvæði og framtak og leita leiða til að koma sínum hugmyndum í framkvæmd. Standa saman og styðja hvert annað til starfa. Þá þarf samfélagið líka að veita athygli starfi unga fólksins, koma á viðburði og styðja við bakið á þeim. En fyrst og fremst þarf frumkvæðið og framtakið að hefjast hjá unga fólkinu ef það er til staðar kemur þátttaka og stuðningur smá saman.





Skrifa athugasemd