Landsflug tekur við rekstri Íslandsflugs
Flugfélagið Landsflug ehf. hefur nú tekið við rekstri Íslandsflugs innanlands og mun því sjá m.a. um flugleiðina Hornafjörður-Reykjavik. Samkvæmt upplýsingum frá Landsflugi munu til að byrja með verði óverulegar breytingar á flugleiðinni Hornafjörður-Reykjavík frá því sem verið hefur hjá Íslandsflugi undanfarin ár en ákveðið hefur verið að bæta við einni ferð á þessari flugleið í hverri viku. Landsflug mun fram að ármótum leigja flugmenn frá Íslandsflugi til að fljúga Dornier-flugvélum félagsins ásamt því sem vélarnar verða enn um sinn skráðar á flugrekstrarleyfi Íslandsflugs sem einnig mun sjá um allt tæknilegt viðhald á meðan svo er.
Um áramótin mun þjálfun nýrra flugmanna Landsflugs verða lokið sem taka þá við af flugmönnum Íslandsflugs. Þá mun allt viðhald einnig verða komið í hendur nýrra eigenda sem og skráning Dornier-véla félagsins á flugrekstrarleyfi Landsflugs.
Sjá Vetraráætlun Landsflugs til Hafnar - gildir frá: 1.okt. 2004 til 26.mars 2005





Skrifa athugasemd