Október

Vígsla skrúðgarðar við hjúktunardeild

Útivistargarður við hjúkrunardeild Skjólgarðs vígður - 29.10.2004 Október

Í sumar hefur verið unnið að gerð útivistargarðs við hjúkrunardeild Skjólgarðs. Garðurinn er gerður þannig að allir sem á hjúkrunarheimilinu dveljast og hafa einhverja fótavist geti notið útiveru í skjólgóðum garðinum. Hönnuður garðsins var Ulla R. Petersen landslagsarkitekt en framkvæmdin var í höndum Blómalands. Allur kostnaður við garðinn var greiddur með peningum úr minningasjóði Skjólgarðs. Í dag þegar minnst var 30 ára afmæli hjúkrunar og dvalarheimilisins Skjólgarðs, vígði og blessaði séra Einar Jónsson á Kálfafellsstað garðinn og óskaði íbúum og dvalargestum Skjólgarðs til hamingju með þessa góðu aðstöðu til útiveru og bað þá vel að njóta. Lesa meira
 
Arnar Rafnkelsson við flutningatankinn

Búið að bræða fjögur þúsund tonn hjá Skeggey - 29.10.2004 Október

Síldarbræðsla hjá Skeggey ehf hefur gengið vel og er búið að bræða fjögur þúsund tonn. Frá Djúpavogi er öll síld, sem ekki er unnin þar til manneldis, flutt í tanki til Hornafjarðar og brædd hjá Skeggey. Ástæðan fyrir þessum flutningum er að sl.vetur keypti Skinney Þinganes loðnu og síldarbræðsluna á Djúpavogi og er öll bræðsla hætt þar. Þegar síldveiði er góð eins og verið hefur undanfarið eru farnar 4-5 ferðir á sólarhring með bræðslusíld og er búið að flytja um 600 tonn til Skeggeyjar. Björn Emil Traustason bræðslustjóri er mjög ánægður með gang mála þar og segir að brætt sé allan sólarhringinn á vöktum og eru starfsmenn níu. |nl| Lesa meira
 
Vatnajökull Þjóðgarður

Stærsti þjóðgarður Evrópu verður að veruleika - 28.10.2004 Október

Í fréttabréfi frá Umhverfisráðuneytinu segir að Umhverfisráðherra hafi með undirritun sinni í dag, 28. október 2004, staðfest nýja reglugerð um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs sem stofnaður var árið 1967. Reglugerðin felur í sér þreföldun á flatarmáli þjóðgarðsins, sem var áður 1.600 km2 en er nú er orðinn 4.807 km2. Skaftafellsþjóðgarður nær nú meðal annars til svæðis sem nemur um 57% af Vatnajökli auk Lakagígasvæðisins. Í fyrstu grein reglugerðar um Skaftafellsþjóðgarð segir að markmiðið með stofnun og rekstri þjóðgarðsins sé að vernda landslag, lífríki og menningarminjar svæðisins og gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru þess og sögu. Auðvelda skuli almenningi aðgengi að þjóðgarðinum eftir því sem unnt sé án þess að náttúra hans spillist og efla skuli fræðslu um náttúru, sögu og mannlíf svæðisins. Landnýting innan þjóðgarðs skuli vera í samræmi við markmið hans og byggja á sjónarmiðum sjálfbærrar þróunar. Lesa meira
 
Ásgerður Kristín Gylfadóttir

Opinn fundur um geðheilbrigðismál í Nýheimum - 28.10.2004 Október

Í næstu viku mun Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands boða til opins fundar um geðheilbrigðismál í Nýheimum og mun gestur fundarins verður Bjarni Arnarson en hann hefur haldið fyrirlestra víða í Framhaldsskólum landsins á vegum Geðræktar. Bjarni mun ræða um reynslu sína af því að veikjast alvarlega af geðsjúkdómi og hvernig hann hefur náð að vinna heilsuna aftur og viðhalda henni. Hvernig eflir maður geðið? Hvað ber að varast? Hvernig þekkir maður einkennin? Eru mestu fordómarnir hjá manni sjálfum? Þessar spurningar og fleiri verða ræddar og fjallað verður um málefni tengd geðröskunum og geðrækt. Lesa meira
 
4x4 Úr myndasafni

Halda upp á eins árs afmæli 4x4 Hornafjarðardeildar - 28.10.2004 Október

Hornafjarðardeild klúbbsins 4x4 á eins árs afmæli núna í lok þessa mánaðar. Klúbburinn hefur formlega verið tekinn í Landsdeild klúbbsins 4 x 4 sem er með tíu deildir víðsvegar um landið. Um næstu helgi er fyrirhuguð haustferð klúbbsins og verður farið af stað frá Höfn á föstudag, ekið um Fjallabaksleiðir, gist tvær nætur í Hólaskjóli og komið heim á sunnudag. Þorkell Kolbeins segir að ákveðið hafi verið í vor að ekki yrðu skipulagðar ferðir á vegum klúbbsins í sumar þar sem ferðafélagið hér hefði verið með slíkar ferðir á þeim tíma en stefnt væri að því að fara a.m.k. 2-3 ferðir í vetur. Klúbburinn verður með fasta spjallfundi annan hvern miðvikudag þar sem menn koma saman og ræða málin. Margir halda að til þess að vera gjaldgengur í 4 x 4 klúbbinn þurfi viðkomandi að eiga jeppa og það helst breyttan vel útbúinn fjallajeppa en svo er þó víðsfjarri segir Þorkell, það eru allir velkomnir í klúbbinn sem hafa áhuga á ferðamennsku og skoða landið. Lesa meira
 
Slatur_ Unnur Guðmundsdóttir

Ódýrari og hollari matur er varla á boðstólum - 27.10.2004 Október

Í dag er síðasta tækifæri til að ná sér í slátur eða annan innmat í Slátursölu Norðlenska á Höfn. Unnur Guðmundsdóttir sem séð hefur um slátursöluna í haust segir að mikil sala sé búin að vera alveg frá byrjun sláturtíðar. ,,Það hefur verið lengur opið núna en áður, það er bara fullt að gera alla daga og mér finnst búið að vera mikið meiri sala en sl.haust,” segir Unnur. Hún segir að það sé ekki bara þeir sem komnir eru á miðjan aldur og þar yfir sem kaupa slátrum, unga fólkið stendur sig vel í þessum matarkaupum og býr til slátur. Algengt er að keypt séu 5 - 10 heil slátur og svo eru einnig margir sem kaupa bara hluta slátursins s.s. lifur hausa eða annan innmat. Verð á heilum slátrum er 645 kr. hjörtu kr.199 og lifur 189 kr. Ódýrari og hollari matur er varla á boðstólum ásamt því að vera auðveld matargerð sem einnig býður uppá fjölbreytni. Lesa meira
 
Tengivatn_IMG_7427

Tengivagn á hliðina í Skarðsdal - 26.10.2004 Október

Umferðaróhapp varð um miðjann daginn í dag á veginum í Skarðsdal norðan við Almannaskarð þegar tengivagn við bíl sem notaður er til malarflutninga lenti útaf veginum og skemmdist mikið. Ökumaður bílsins, Emil Erlingsson telur líklegast að eitthvað hafi brotnað í tengingu vagnsins og er vagninn mikið skemmdur. Eigandi vagnsins er Hagverk í Fellabæ. Verið var að flytja möl úr Fjarðará í uppbyggingu á veginum norðanmegin við göngin þegar óhappið varð en byrjað var á veginum Lón-megin í morgun. Lesa meira
 
Þrekmeistaramót á Akureyri 2004_Hornfirðingar

Hornfirðingar gerðu það gott í Íþróttahöllinni á Akureyri - 26.10.2004 Október

Þrekmeistaramót Íslands var haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina þar sem Hornfirðingurinn Pálmar Hreinsson setti Íslandsmet í opnum flokki einstaklinga. Pálmar fór gegnum þrekbrautina á 16.56 mín. og bætti íslandsmet sitt frá í fyrra um 4 sek. en hann keppti fyrir World Class í Reykjavík. Frá Sporthöllinni á Hornafirði mættu tvö fimm manna lið til keppni, Íþróttaálfarnir sem náðu 4. sæti og Dreifbýlistútturnar sem urðu í 9.sæti. Pálmar er íþróttakennari og starfar við þjálfun í World Class þar sem hann hefur verið undanfarin 5 ár auk þess sem hann hefur fengist við stundakennslu í Borgarholtsskóla og M.R. ,,Varðandi þrekmeistaramótið þá hef ég tekið þátt fjórum sinnum, var í öðru sæti á mínu fyrsta móti, en hef svo sigrað þrjú mót eftir það sagði Pálmar þegar fréttamaður hafði samband við hann. Nú stendur mér til boða að keppa á móti í London um næstu helgi sem nefnist "best of the best international". En keppnir sem þessar njóta sívaxandi vinsælda í Bretlandi. Þar nefnast slíkar keppnir "Cross Training" keppnir, sem vísar til þess að þær reyni á keppendur á sem fjölþættastan hátt, þ.e. hvað varðar þol, styrk, snerpu og útsjónasemi. Lesa meira
 
Ásgrímur Halldórsson SF í höfn

Ásgrímur Halldórsson kemur inn í dag með rúm 300 tonn af síld - 25.10.2004 Október

Góð síldveiði var hjá bátum Skinneyjar Þinganess um helgina. Áskell landaði rúmlega 400 tonnum í gær, Jóna Eðvalds var með 210 tonn og Ásgrímur Halldórsson kemur inn í dag með rúm 300 tonn af síld. Síldin veiðist útaf Reyðarfirði. Sverrir Aðalsteinsson segir að unnið sé á vöktum í síldinni allan sólarhringinn. Fullmannað er við síldarvinnsluna en Sverrir segir að samt sé hægt að bæta við fólki. Línubátar hafa aflað vel og veiði netabáta hefur verið þokkaleg en lélegt hjá handfærabátum. Nýjasta skip Skinneyjar Þinganess, Hvanney er farin á net og hefur hún fengið góðan afla. Lesa meira
 
Helgi og Jón Kjartanssynir

Rósaberg gerir hringtorg á hringveginum við Kirkjubæjarklaustur - 25.10.2004 Október

Í þessari viku verður lokið við gerð hringtorgs á hringveginum við Kirkjubæjarklaustur og er það Rósaberg ehf á Hornafirði sem sér um verkið. Hringtorgið sem er norðaustan við Klaustursskála er tenging að Kirkjubæjarklaustri, hringveginum, Geirlandsvegi og Klausturskála. Tilboð Rósabergs í verkið var 21.690.950 kr. Ekki eru allir vegfarendur á einu máli um ágæti þessara framkvæmdar, sumum finnst ekki passa að setja hringtorg þarna og telja það ónauðsynlega hindrun á hringveginum, öðrum finnst þetta góð framkvæmd sem auki öryggi vegfarenda. Allavega er mannvirkið fallegt og eins og vegfarandi sagði ,, þetta setur menningarlegan svip á staðinn.” Lesa meira
 
Ingólfur Baldvinsson hjá Vöruflutningardeild KASK

Óvenju mikið flutt af kartöflum í stórmarkaðina í Reykjavík - 22.10.2004 Október

Vöruflutningar til og frá Hornafirði eru nú nær eingöngu með flutningabílum ef undan eru skildir olíuflutningar og frystir fiskafurðir sem fluttir er með skipum. Flutningadeild Kask er með 3 flutningabíla í föstum ferðum milli Hafnar og Reykjavíkur alla virka daga nema meðan flutningar sláturfjár standa yfir þá sinnir einn bíllinn þeim flutningi. |nl|Það hefur verið mikið um aukaferðir með gáma og fleira alveg frá áramótum og bara fullt að gera segir Ingólfur Baldvinsson hjá flutningadeildinni. Með því helsta sem við flytjum er saltfiskur bæði frá Skinney Þinganesi og Bestfiski, svo hefur verið óvenjumikið flutt af kartöflum í stórmarkaðina í Reykjavík undanfarið t.d. fóru um 60 tonn af nýjum kartöflum í ágúst. Frá Reykjavík er stærsti farmurinn vörur til byggingavörudeildarinnar, fiskvinnslustöðvanna og verslana á staðnum. Lesa meira
 
Diskósýningin á Hótel Höfn verður nú sýnd á Broadway

Hornfirska skemmtifélagið með DISKÓ á Broadway - 20.10.2004 Október

Næstkomandi föstudag mun Hornfirska skemmtifélagið sýna skemmtidagskrá sína, DISKÓ á veitingahúsinu Broadway í Reykjavík. Sýningin hefur vakið mikla athygli og hefur hver sýningin á fætur annarri verið uppseld. Í sýningunni flytja sjö söngvarar og fimm manna hljómsveit alla heitustu diskósmellina sem hljómuðu í Hollywood við Ármúla og fleiri stöðum á diskótímanum. Þetta eru lög sem allir þekkja í flutningi diskódrottninganna Donnu Summer, Tinu Charles og Gloriu Gaynor og að sjálfsögðu eru Bee Gees, Boney M, Abba og fleiri með í pakkanum. Hljómsveitin KUSK leikur á stórdansleik að sýningu lokinni og hefur sveitin aldrei verið þéttari. Fyrir sýninguna á Boradway leika BG og BJARTUR, en það eru þeir Björn Gylfason, Gunnlaugur Sigurðsson og Bjartur Logi Finnsson. Lesa meira
 
Páll Kristjánsson og Sigurður Karlsson að taka stöðuna í tengistöðinni í Hólum

Rafmagn að komast í eðlilegt horf - 19.10.2004 Október

Rafmagn fór af Höfn og nágrenni um miðjan daginn í gær eftir að Suðurlínan datt út vegna bilunar, en fyrr um morguninn hafði byggðarlínan við Almannaskarð slitnað og því varð Höfn og nágrenni rafmagnslaus. Díselrafstöðin sem er út í Álaugarey var sett í gang seinni partinn í gær og síðar bættist við Smyrlabjargarvirkjun en saman geta þær framleitt um 3400kw. Skömmtun var á rafmagni í nótt og fram eftir morgni en að sögn Páls Kristjánssonar stöðvarstjóra RARIK á Höfn þá eru flestir komnir með rafmagn fyrir utan Suðursveit og Öræfi þar sem er línubilun sem á eftir að gera við. Ekki varð mikil truflun á hitaveitunni sem kynnt var með olíu en undir venjulegum kringumstæðum er hún kynnt með rafmagni. Lesa meira
 
Samverustund 6. bekkur

Foreldrar og nemendur 6.bekkjar héldu samverustund - 18.10.2004 Október

Þrátt fyrir kennaraverkfall þessa dagana létu foreldrar og nemendur í 6.bekk Hafnarskóla það ekki á sig fá og héldu sínu striki síðastliðinn laugadag og héldu samverustund. Í blíðskaparveðri var lagt af stað frá Lónsafleggjaranum og stefnan tekin á Papós. Ætlunin var að ganga áleiðis að ósnum og skoða tóftir sem eru á svæðinu. Nesti var að sjálfsögðu með og eftir góða göngu var tekið til við að næra mannskapinn og síðan var farið í leiki. Í bakaleiðinni var gengið meðfram fjallinu og margt að sjá. Meðal þess sem skoðað var eru leifar af myndsetti fyrir kvikmyndina Bjólfskviðu sem verið var að taka upp hér síðsumars. Svæðið okkar hér í Hornafirði hefur uppá svo margt að bjóða og segir það okkur að leita ekki langt yfir skammt að sækja skemmtun og útivist. |nl| |nl| Lesa meira
 
Golfvöllurinn skartar sínu fegursta

Bændaglíma hjá á Golfklúbbi Hornafjarðar um helgina. - 15.10.2004 Október

Um helgina gefst félögum í Golfklúbbi Hornafjarðar kostur á að taka þátt í síðasta móti ársins, ef frá er talið mót sem haldið hefur verið á gamlársdag og verður væntanlega einnig nú, ef veður leyfir. Mótið um helgina kallast bændaglíma og felst leikurinn í því að skipaðir eru tveir bændur sem síðan velja sér liðsmenn sem keppa sín á milli og það lið sem kemur út með best skor vinnur. Haldi menn að bændaglíma sé bara fyrir karla er það misskilningur, hún er ekkert síður fyrir konur. Að loknu mótinu býður golfklúbburinn mótsgestum uppá kjötsúpu eins og hún gerist best og er matreiðslumaður Vífill Karlsson. Guðný Helgadóttir formaður golfklúbbsins segir að svipaður fjöldi golfara hafi komið á völlinn í sumar og var sl.ár en það besta var hvað veðrið hafi verið ótrúlega gott. Í sumar var byrjað með mótaröð sem alltaf var spiluð á miðvikudögum og var þátttaka góð. Ekki var mikil fjölgun kvenna í golfinu í sumar en Guðný segist sjá fram á fjölgun kvenna næsta sumar. Lesa meira
 
Vatnsveita Hornafjarðar

Vatnsleysi stafaði af bilun í stýrikerfi vatnsveitunnar - 15.10.2004 Fréttir

Í gær urðu bæjarbúar varir við að vatnsleysi sem stafaði af bilun í stýrikerfi vatnsveitunnar í dæluhúsi við vatnsmiðlunargeyminn á Höfn. Við vatnsbólið í Hólmslindum í Laxárdal eru 5 dælur sem afkasta um 60 l/s, en reiknað er með að vatnsbólið gefi að jafnaði um 80 l/s. Miðlunargeymirinn við tjaldstæðið á Höfn er 1.900 rúmmetrar ( 1.900.000 lítrar ) og miðlunargeymir í Ketilaugarfjalli í Nesjum er 300 rúmmetrar ( 300.000 lítrar ). Dælur í miðlunargeymi á Höfn stýra síðan vatnsþörfinni út á dreifikerfið á Höfn og þrýstingur er um 2 kg. en það sem gerðist í gær var að dæla stöðvaðist vegna bilunar og við það fellur þrýstingur og fyrst hjá þeim sem búa hæðst yfir sjávarmáli. Mesta vatnsþörf er í kringum vinnslu á uppsjávarfiski og fara um 70 l/s þegar mest er. Fiskvinnslan í Krossey er hinsvegar með dælur á sínu vatnskerfi og skammta sér þrýsting inn í hús þannig að þar kemur þetta ekki að sök. Lesa meira
 
Rannveig Einarsdóttir

Svæðisskrifstofa Suðurskóga flytur í Nýheima - 15.10.2004 Október

Suðurskógar hafa fengið aðstöðu og opnað svæðisskrifstofu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum. Rannveig Einarsdóttir, sem er svæðisstjóri fyrir suðausturland, er mjög ánægð með aðstöðuna í ,, landbúnaðarhorninu”, þar sem hún er við hliðina á búnaðarsambands-skrifstofunni. Aðspurð segir Rannveig að starf svæðisstjóra sé m.a. að skrá og kortleggja allt sem gert er í skógrækt á svæðinu. Skrá þarf nákvæmlega allar plöntur sem gróðursettar eru, allt frá fræinu sem hefur sitt númer, hvar og hvenær það var sett niður. Þetta er gert til, ef þarf einhverra hluta vegna, að hægt sé að leita upprunans hvort sem það þarf vegna ágætis eða lélegs árangurs í ræktuninni. |nl|Skógrækt gekk vel í sumar þó eitthvað hafi orðið vart við grasmaðk og jarðyglu. Rannveig á ekki von á að neinn met vöxtur hafi orðið þar sem miklir þurrkar hafi verið og dregið úr vexti trjáa. Lesa meira
 
Björg Svavarsdóttir og Guðný Jensdóttir stjórnarmenn

Vakin athygli á brjóstakrabbameini á Íslandi - 14.10.2004 Október

Núna í októbermánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini á Íslandi, fimmta árið í röð og er þetta hluti af alþjóðlegu átaki . Frætt er um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Krabbameinsdeildin á Hornafirði var endurvakin fyrir tveim árum og er Guðný Jensdóttir formaður deildarinnar. Meðal verkefna deildarinnar er fjáröflun með pennasölu einu sinni á ári og einnig með sölu minningarkorta sem hægt er að fá hjá stjórn deildarinnar. Guðný segir að pennasalan hafi gengið frábærlega vel og vill hún koma þakklæti til Hornfirðinga fyrir góðan stuðning og hvað þeir hafi tekið vel á móti sölufólki. Bleiki liturinn er tákn þessa átaks og eru ýmsar merkar byggingar víða um land baðaðar bleikum ljósum þar á meðal Hafnarkirkja. Bleika slaufan verður til sölu í Lóninu og er verð hennar 100 kr. og svo er frjálst framlag. Lesa meira
 
Þorsteinn Haukur tollfulltrúi og hundurinn Bassi þegar þeir heimsóttu Landakirkju

Þorsteinn Haukur tollfulltrúi og hundurinn Bassi með fyrirlestur um skaðsemi fíkniefna í Hafnarkirkju - 13.10.2004 Október

Á morgun fimmtudaginn 14. október heimsækja Þorsteinn Haukur Þorsteinsson tollfulltrúi og fíkniefnaleitarhundurinn Bassi Hornfirðinga og nærsveitunga. Þorsteinn Haukur hefur undanfarin ár haft það sem hluta af sínu starfi á vegum tollgæslunnar að fræða börn og unglinga um þann vágest sem fíkniefni eru í nútímaþjóðfélagi en s.l. vetur fengu 97% fermingarbarna á landinu heimsókn frá Tollgæslunni í Reykjavík með fræðslu um skaðsemi fíkniefna. Þorsteinn Haukur er skemmtilegur fyrirlesari og er ekkert að skafa utan af hlutunum og það sem hann hefur að segja á erindi við bæði unga sem aldna. Á ferðum sínum um landið hefur hann fíkniefnaleitarhundinn Bassa sér til fulltingis, Bassi hefur gert mörgum smyglaranum lífið leitt á farsælli starfsæfi hjá tollstjóraembættinu enda með þeim færustu á sínu sviði. Lesa meira
 
Birna, Ófeigur, Jón Björn, Heiða Björg og tengdadóttirin Carina

Landsýn, hornfirska ferðaþjónustan í Noregi - 13.10.2004 Október

Hornfirðingarnir, hjónin Ófeigur Jóhannesson (Bjössi) og Birna Ingólfsdóttir ásamt fjölskyldu þeirra , sem opnað hafa ferðaþjónustuna Landsýn í Noregi og selja ferðir til Íslands, tóku þátt í mikilli sýningu um helgina þar sem þau kynntu land og þjóð. Af þessu tilefni hafði vefurinn samband við þau til að fá fréttir af þessu framtaki þeirra. Við í Landsýn erum byrjuð okkar markaðssetningu hérna í Noregi segir Birna, við vorum þátttakendur í sýningu í miðborg Oslóar um helgina, þar kynntum við starfsemi Landsýnar og þá möguleika sem Island hefur uppá að bjóða. Það væri skömm að segja að Norðmenn hefðu ekki áhuga á Islandi. Við fengum ótrúlega góðar viðtökur en margir höfðu verið í stuttri heimsókn á Íslandi og ætluðu aftur þangað og þá í lengri tíma. Við vorum með myndasýningu frá Jökulsárlóninu ( myndirnar fengum við frá hornafjorður.is) og Vatnajökli ásamt fleiri landslagsmyndum. Við vorum einnig með myndir frá Lónsöræfum og vöktu þær ómælda eftirtekt sýningargesta. Lesa meira
 
Frá námskeiði slökkviliðsins við eiturefnaslysum

Varnir og viðbrögð slökkviliðsins við eiturefnaslysum - 12.10.2004 Október

Um helgina var haldið þriggja daga námskeið fyrir slökkviliðsmenn á Höfn á vegum Brunamálaskólans. Námskeiðið gekk að þessu sinni út á varnir og viðbrögð slökkviliðs við eiturefnaslysum, meðhöndlun og meðferð eiturefna mengun og ýmis önnur vandamál sem slíkum slysum fylgja. Verklegu þættir námskeiðsins fóru fram á Hornafjarðarflugvelli þar sem farið var yfir viðbrögð við ,,eld í flugvélum”. Farið var í fyrirtækið Skinney Þinganes þar sem frystihúsið var skoðað með sérstöku tilliti til frystitækja í sambandi við ammoníak. Við slökkvistöðina voru verklegar æfingar þar sem tækjabúnaður Farskóla Brunamálastofnunar var notaður, en bóklegt nám fór fram í ráðhúsinu. Um kennslu sáu tveir kennarar af Keflavíkurflugvelli ásamt Elísabetu Pálmadóttur skólastjóra Brunamálaskólans. Námskeiðið sóttu 13 slökkviliðsmenn þar af þrír frá Egilsstöðum. Lesa meira
 
Úr myndasafni

Diskósýning og pizzuveisla 8.-10. bekkur - 11.10.2004 Október

Þrykkjan og Hornfirska skemmtifélagið er með unglingasýningu ( 8.-10. bekkur) á diskófárinu LET'S BOOGIE BABY á Hótel Höfn næsta fimmtudagskvöld kl. 21:00 ef næg þátttaka fæst. Á sýninguna og veisluna kostar 1700 krónur. Þetta er tónlistarlegt tímabil sem eflaust er forvitninlegt fyrir unglingana að upplifa og einnig má geta þess að í sýningunni er að finna fjóra söngvara sem komið hafa við sögu í söngvarakeppni Þrykkjunnar í gegnum árin þær Eddu Bjarnadóttur og Huldu Rós Sigurðardóttur sem sigruðu á sínum tíma og Sigríður Bára sem nú er starfsmaður Þrykkjunnar og ekki skal gleyma Þrykkjupeyjanum Birgi Fannari sem söng og spilaði á trommur þar. Lesa meira
 
Fjöldi manns mætti til að fagna við Almannaskarð

Búið að sprengja síðasta spottann undir Almannaskarð - 11.10.2004 Október

Á föstudaginn sprengdi samgöngumálaráðherra Sturla Böðvarsson síðasta spottann í göngunum undir Almannaskarð. Fjöldi manns mætti til að fagna þessum áfanga og þegar búið var að hreinsa grjótið eftir síðustu sprenginguna var gestum boðið í rútuferð inn í göngin. Þar voru fluttar ræður og farið var yfir framkvæmdina sem hefur gengið ótrúlega vel. Framkvæmdir á verkstað hófust í lok mars 2004 við aðstöðusköpun og gröft á lausu efni í forskeringu að sunnanverðu. Í byrjun maí hófst borun fyrir sprengingum á föstu bergi í forskeringu að sunnanverðu og var þeim greftri lokið í byrjun júní. Verktaki hóf vinnu við bergstyrkingar á munnastáli að sunnanverðu þann 6. júní og þann 16. júní tendraði samgönguráðherra fyrstu formlegu jarðgangasprenginguna að viðstöddum fjölda gesta. Lesa meira
 
Vatnajökull þjóðgarður kynningarfundur Hrollaugsstöðum

Beinskeyttar umræður um uppbyggingu þjóðgarðsins - 08.10.2004 Október

Á fundi með umhverfisráðherra í Hrollaugsstöðum í gær var kynnt ný reglugerð um Skaftafellsþjóðgarð þar sem fjallað var um Lakagígasvæðið og umferð á Vatnajökli. Fundinn sátu um 20 manns og fram fóru beinskeyttar umræður um uppbyggingu þjóðgarðsins. Fram kom að væntingar heimamanna til verkefnisins eru miklar, gagnrýnt var að markmiðssetning með stækkun þjóðgarðsins væri ekki nógu skýr og brýnt væri að nægir fjármunir fylgdu verkefninu til að hægt væri að hefjast handa um nauðsynlegar framkvæmdir. Fyrstu skrefin að mati heimamanna eru að ákveða og bæta aðgengi að jöklinum, koma upp merkingum m.a. með það að markmiði að auka öryggi og þekkingu þeirra sem um jökulinn fara á eigin vegum. Umhverfisráðherra skýrði frá að í athugun væri að amk. tvær jarðir eða jarðarhlutar yrðu teknar inn í þjóðgarðinn á næsta ári þ.e. land ríkisjarðarinnar Flateyjar á Mýrum og hluti af jörðinni Skálafell 1 í Suðursveit, samkvæmt óskum landeigenda þeirrar jarðar. Kom fram í máli hennar og ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytisins að vel kæmi til greina að jarðir í einkaeign teldust til þjóðgarðs ef landeigendur sæju sér hag í því enda leyfilegt samkvæmt núgildandi lögum. Lesa meira
 
Jóna Eðvalds SF-200 og Áskell EA-48

Samningur við útgerð Áskells EA um löndun síldar hjá Skinney - 07.10.2004 Október

Síðustu dagar hafa verið vindasamir en nú er komið fegursta veður, svo til logn og hiti aðeins yfir frostmarkinu. Í morgun voru nær allir Hornafjarðarbátar farnir á sjó eftir ógæftir undanfarna daga. Vignir Júlíusson á hafnarvoginni sagði að fiskirí hefði verið frekar rólegt undanfarið þá sjaldan hafi gefið til veiða. Skinney Þinganes hefur tekið á móti 1100 tonnum af síld það sem er þessari vertíð. Jóna Eðvalds og Áskell EA 48 sem er systurskip Jónu Eðvalds, fengu síldina á Halamiðum. Gerður hefur verið samningur til fimm ára við útgerð Áskells um löndun síldar hjá Skinney Þinganesi. Í dag er Áskell að veiðum á halanum en Jóna Eðvalds er að leita síldar út af austfjörðum en sú leit hefur lítinn árangur borið enn sem komið er. Lesa meira
 
Borun í bergið @Geotek

Göngin mætast á réttum stað - 07.10.2004 Október

Nú á einungis eftir að sprengja u.þ.b. 4 metra haft í Almannaskarðsgöngunum sem geymt verður til morgundagsins en þá mun Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra koma og sprengja síðasta haftið. Búið er að bora granna holu í gegn svo ljóst er að göngin að norðan og sunnan mætast á réttum stað. Eftirvinna er hafin í göngunum og unnið við vegskálabyggingu að norðan og vegagerð að sunnan. Þó vel hafi gengið að bora og sprengja og sá hluti verksins sé langt á undan áætlun er óvíst hvort það verði til þess að umferð um göngin hefjist fyrr en áætlað var, þ.e. í júní 2005, vegna mikillar vinnu í göngunum, vegskálum og eins við aðkomu að þeim. Lesa meira
 
Diskó á Hótel Höfn

Fullt hús á Diskó-sýningunni á Hótel Höfn - 07.10.2004 Október

Um síðustu helgi var fullt hús á Diskó-sýningunni á Hótel Höfn og var flytjendum þar vel fagnað. Þetta var alveg frábært og fólk skemmti sér mjög vel, sagði Óðinn Eymundsson einn hóteleigenda. Alls taka 17 manns þátt í sýningunni sem gengur út á diskó-tónlist og diskó-stemninguna eins og hún gerðist best hér á árum áður og flytjendur eru klæddir samkvæmt því sem fylgdi diskó-tískunni um 1980. Matseðillinn er í anda diskótímabilsins þar sem forréttur er diskókúla, aðalréttur lambalæri bernease og eftirréttur kaffi og konfekt. Uppselt er á sýninguna um næstu helgi en eitthvað óselt fyrir sýninguna sem verður 16. október. Lesa meira
 
Hljómsveitin Skítúr á fullri keyrslu

Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar - 06.10.2004 Október

Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar liggur nú fyrir fram að áramótum. Næsti viðburður í tíma er hið árlega sundstuð í Sundlaug Hafnar sem fer fram á fimmtudagskvöldið, síðan rekur hver viðburðurinn annan. Í október má nefna m.a. Lan-diskósýningu-Fjarðaball-hæfileikakeppni, íþróttamót-Þrykkjurokkstónleika. Í nóvember er m.a. Hrekkjavakan (draugahúsið) -IDOLIÐ-kassaklifur-extreme diskó-söngvakeppni og ball með hljómsveit-íþróttamót, í desember verður íþróttamót, Jólabingó og Jólapakkaball. Unglingum er bent á að kynna sér dagskrána í Þrykkjunni og einstakir viðburðir eru alltaf auglýstir á SkjáVarpinu. Segja má að endanlega hafi dagskráin verið mótuð á vinnufundi Þrykkjuráðs og starfsmanns í Araseli um helgina. Á hverjum miðvikudegi er sameiginlegur fundur unglinganna í Þrykkjuráði og starfsmönnum. Þá er klúbbastarf að fara í gang. Lesa meira
 
Unnið vð logsuðu í Vélsmiðju Hornafjarðar

Vélsmiðjan auglýsir eftir starfsfólki - 06.10.2004 Október

Þessa dagana er Vélsmiðja Hornafjarðar að auglýsa eftir starfsfólki á flestar deildir fyrirtækisins. Að sögn Jóns Skeggja Ragnarssonar framkvæmdarstjóra fyrirtækisins þá er mikið törn framundan og því nauðsynlegt að bæta við fólki. Um er að ræða framtíðarstörf á véla-, bifreiða-, og dekkjaverkstæði fyrirtækisins. Vélsmiðjan sem var stofnuð 1972 er með fjölmörg sölu og þjónustuumboð og því er skalinn allt frá skellinöðrum upp í þungavinnuvélar. Kjarni starfsmanna er sá sami og var við stofnun fyrirtækisins en eins og öll fyrirtæki sem vaxa og dafna þá er nauðsynlegt að bæta við nýjum mannskap segir Jón Skeggi. Lesa meira
 
Ellen Junger á Seljavöllum með kartöfluna góðu

Kartöfluuppskeran eins og best gerist - 06.10.2004 Október

Kartöflubændur í Hornafirði eru afskaplega ánægðir með kartöfluuppskeru sína og búnir að koma henni í hús þ.e.a.s. því sem ekki er þegar farið til kaupenda. Þeir bændur sem haft var samband við eru sammála um að kartöfluuppskeran í haust sé eins og best gerist og kartöflurnar sérlega góðar. Stærstir á markaðnum hér eru Seljavallarbændur sem settu niður um 25 tonn af útsæði í vor og fengu um 15 -16 falda uppskeru í haust. Hjalti Egilsson segir að sala á kartöflum hafi gengið mjög vel og byrjað snemma. Gullauga er langvinsælasta kartöflutegundin og er um helmingur þess sem selt er. Talsvert magn af kartöflum er forsoðið og segir Hjalti að besti markaðurinn fyrir þær sé á sumrin. Stærsta kartaflan þar á bæ var 658 gr. premía. Lesa meira
 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

Kynningafundir um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs - 05.10.2004 Október

Stækkun Þjóðgarðsins í Skaftafelli var tilkynnt formlega og við hátíðlega athöfn í Skaftafelli 12. september sl. Til að fylgja málinu eftir mun nýskipaður umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir ásamt samstarfsfólki halda kynningar og samráðsfundi að Hrollaugsstöðum fimmtudaginn 7. október kl. 20:30 og á Hótel Höfn föstudaginn 8. október kl. 12:00. Annars vegar verður rætt um reglugerð fyrir þjóðgarðinn eins og hann verður eftir stækkun og hins vegar tillögur sem fram koma í skýrslu um Vatnajökulsþjóðgarð sem ná mun yfir allan jökulinn. Lesa meira
 
Hvanney SF-51 komin til heimahafnar

Nýr bátur til Skinneyjar-Þinganess - 04.10.2004 Október

Nýr bátur Skinneyjar-Þinganess, Hvanney SF-51 kom til sinnar heimahafnar seinni partinn í dag. Hann er 357 brúttótonna stálbátur, smíðaður í Kína árið 2001, 28 metrar á lengd og 9 metrar á breidd. Hvanney hét áður Happasæll og var gerður út frá Keflavík en hann er keyptur hingað án aflaheimilda. Átta manna áhöfn verður á bátnum og er Þorsteinn Guðmundsson skipstjóri. Þorsteinn var áður skipstjóri á Erlingi SF-65 og fylgir áhöfnin sem var með honum þar yfir á Hvanney SF, en nýr skipstjóri og áhöfn fara á Erling. Lesa meira
 
Fóstra með sitt 10. lamb  @Eyrún Halla

Óvenjulegur sauðburðartími - 04.10.2004 Október

Það fer að verða árlegur viðburður fyrir Ragnheiði Magnúsdóttur bónda á Svínafelli í Öræfum að ær hennar beri að haustinu. Fyrir nokkrum dögum bar ærin Fóstra svörtum hrút sem dafnar vel. Þann 20. ágúst bar gömul ær tveim lömbum og var það eins með hana í fyrra, þá bar hún í lok sept. sem varð henni til lífs því þá hafði verið ákveðið að lóga henni en að sjálfsögðu fær hún nú að lifa og hugsa um lömbin sín sagði Ragnheiður. Svona óreglulegur sauðburður er ekki óvenjulegur hjá Ragnheiði því í fyrra báru þrjár ær í ágúst og ein í september og þrjár þeirra eignuðust aftur lömb í vor. Lesa meira
 
Birna Aðalsteins að skoða grænmetið hjá Finndísi í Dilksnesi

Líflegt á markaðstorginu í Hornabæ - 02.10.2004 Október

Það var líflegt á markaðstorginu í Hornabæ um helgina og sölufólkið lét vel yfir aðsókninni. Að vanda var þar fjölbreyttur varningur til sölu ásamt kaffi og meðlæti. María Gísladóttir sagði að vinsælasta söluborðið hefði verið hjá Finndísi í Dilksnesi. Þar fengust gulrætur, rófur kartöflur, tómatar og agúrkur allt lífrænt ræktað það er grænmeti sem ekki eru notuð nein úðunar eða vaxtabóta efni við ræktunina. Sævar Kristinn og Pálína voru á sínum stað með úrvals kinda- og svínakjöt, lifur og flesk. Það var sem sagt nóg að fara á markaðstorgið í Hornabæ til að kaupa í Hornfirska framleiðslu í helgarmatinn. Lesa meira
 
Árni Rúnar Þorvaldsson kennari

Við viljum að hvergi verði kvikað frá kröfum - 01.10.2004 Október

Stjórn KSA, kennarasambands Austurlands kom saman í gær út af verkfallinu og hefur hún þungar áhyggjur af ástandinu. Á fundinum kom fram fullur stuðningur við samninganefnd kennara og kennarasamband Íslands og var þeim tillögum beint til stjórna þeirra að hvika hvergi frá settum markmiðum. Árni Rúnar Þorvaldsson sem er kennari við Heppuskóla, segir að kennarar séu orðnir langeygir eftir lausn kennaradeilunnar en eru samt harðir á að ekki eigi að skrifa undir neina skammtímasamninga eða einhverja samninga sem þeir geti ekki sætt sig við. ,,Við viljum að hvergi verði kvikað frá kröfum heldur haldið áfram eins og talað var um” segir Þorvaldur. Lesa meira
 
Stórmyndin Epíð

Málþing með ungu fólki á Hornafirði - 01.10.2004 Október

Þann 8. september s.l.var haldið málþing með ungu fólki hér á Hornafirði sem bar yfirskriftina Ungt fólk, fjör og framtak skammstafað Úfff. Málþingið kom í kjölfar fjölbreyttrar dagskrár þar sem í boði voru góð sýnishorn um frumkvæði ungs fólks, sem sýndu hverju hægt er að áorka sé vilji, orka, ástundun og úthald til staðar. |nl|Á málþinginu var reynt að horfa til félags- og menningarlífs ungs fólks á aldrinum 16 – 25 ára á Hornafirði. Góðir gestir fluttu framsögur á málþinginu. Má þar nefna nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, Fjölbrautarskóla Suðurlands, H-húsinu í Hveragerði og fjallað var um jaðaríþróttir. Um þingsetningu sá Bergþóra Ágústsdóttir þáverandi formaður nemendaráðs FAS og kynnir var María Erla Maack fjöllistakona. Ráðstefnustjóri var Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS. Lesa meira
 
Vignir Þorbjörnsson á Hornafjarðarflugvelli í þjónustuhlutverkinu (úr myndasafni)

Landsflug tekur við rekstri Íslandsflugs - 01.10.2004 Október

Flugfélagið Landsflug ehf. hefur nú tekið við rekstri Íslandsflugs innanlands og mun því sjá m.a. um flugleiðina Hornafjörður-Reykjavik. Samkvæmt upplýsingum frá Landsflugi munu til að byrja með verði óverulegar breytingar á flugleiðinni Hornafjörður-Reykjavík frá því sem verið hefur hjá Íslandsflugi undanfarin ár en ákveðið hefur verið að bæta við einni ferð á þessari flugleið í hverri viku. Landsflug mun fram að ármótum leigja flugmenn frá Íslandsflugi til að fljúga Dornier-flugvélum félagsins ásamt því sem vélarnar verða enn um sinn skráðar á flugrekstrarleyfi Íslandsflugs sem einnig mun sjá um allt tæknilegt viðhald á meðan svo er. Lesa meira
 
Kynningarfundur Suðurlandsskóga og Garðyrkjuskóla ríkisins í Nýheimum @RE

Grænni skógar, nám fyrir skógarbændur - 01.10.2004 Október

Góð mæting var á kynningarfund Suðurlandsskóga og Garðyrkjuskóla ríkisins í Nýheimum í gær á ,,Grænni skógar” sem er yfirskrift á öflugu skógræktarnámi, ætlað öllum fróðleiksfúsum skógarbændum á Suðurlandi, sem vilja ná hámarksárangri í skógrækt. Á fundinum kynntu Björn Jónsson og Magnús Hlynur skógarbændum fyrirkomulag skógræktarnámsins sem nú gefst kostur á að nema hér heima í héraði. Kennt verður frá Garðyrkjuskóla ríkisins í gegnum fjarfundarbúnaðinn í FAS og farið verður í vettvangsferðir hér á heimaslóðum. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica