Þrekmeistaramót Íslands var haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina þar sem Hornfirðingurinn Pálmar Hreinsson setti Íslandsmet í opnum flokki einstaklinga. Pálmar fór gegnum þrekbrautina á 16.56 mín. og bætti íslandsmet sitt frá í fyrra um 4 sek. en hann keppti fyrir World Class í Reykjavík. Frá Sporthöllinni á Hornafirði mættu tvö fimm manna lið til keppni, Íþróttaálfarnir sem náðu 4. sæti og Dreifbýlistútturnar sem urðu í 9.sæti. Pálmar er íþróttakennari og starfar við þjálfun í World Class þar sem hann hefur verið undanfarin 5 ár auk þess sem hann hefur fengist við stundakennslu í Borgarholtsskóla og M.R. ,,Varðandi þrekmeistaramótið þá hef ég tekið þátt fjórum sinnum, var í öðru sæti á mínu fyrsta móti, en hef svo sigrað þrjú mót eftir það sagði Pálmar þegar fréttamaður hafði samband við hann. Nú stendur mér til boða að keppa á móti í London um næstu helgi sem nefnist "best of the best international". En keppnir sem þessar njóta sívaxandi vinsælda í Bretlandi. Þar nefnast slíkar keppnir "Cross Training" keppnir, sem vísar til þess að þær reyni á keppendur á sem fjölþættastan hátt, þ.e. hvað varðar þol, styrk, snerpu og útsjónasemi.
Lesa meira