Ríki Vatnajökuls - September
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Gat í gegnum Almannaskarð eftir 8 daga?
      <description>Það er ljóst að framkvæmdin við göng undir Almannaskarð hefur gengið mjög vel og miklu betur heldur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Upphaflega gerði verktakinn ráð fyrir að gangagreftri lyki um miðjan febrúar á næsta ári. Síðan var þeirri áætlun breytt og gert ráð fyrir að komið væri í gegn um miðjan nóvember nk. Nú er útlit fyrir að gangasprengingum ljúki í lok næstu viku sem þýðir að framkvæmdaraðilarnir Leonhard Nilsen og Sönner frá Noregi og Hérðasverk ehf  eru nokkrum mánuðum á undan upphaflegri verkáætlun. Aðeins á eftir að bora og sprengja um 48 metra sem er aðeins um 4,0% af lengd gangana sem verða alls 1.150 metrar að lengd í bergi. Það jafngildir vegalengdinni  að keyrt sé frá Ráðhúsinu eftir Hafnarbrautinni inn að Mjólkurstöð.</description>
Líflegt starf Framsóknarfélagsins
      <description>Vetrarstarf Framsóknarfélags Austur Skaftafellssýslu er að fara í gang og starfið með almennum fundi sem verður haldinn þriðjudaginn 5. október n.k. í húsi Slysavarnarfélagsins á Höfn. Dagskrá fundarins  m.a. taka á bæjarmálum og munu fulltrúar framsóknar í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornfjarðar fara yfir hvað sé að gerast á þeim vígsstöðvum og sitja fyrir svörum. Einnig verður kosning fulltrúa á kjördæmaþingið sem fram fer í suðurkjördæmi í október. Í byrjun október er von á konum frá landsambandi framsóknarkvenna og munu þær halda fund fyrir framsóknarkonur í sveitarfélaginu. Aðalfundur félagsins verður síðan haldinn í lok október.</description>
Sunnudagaskólinn og fermingarundirbúningur
      <description>Sunnudagaskólinn hóf göngu sína á sunnudaginn var, 26. september, í Hafnarkirkju undir stjórn séra Fjölnirs Ásbjörnssonar sem ráðinn hefur verið til að leysa af séra Sigurð Kr. Sigurðsson í vetur.  Mæting í sunnudagaskólann var góð en yfir 80 manns, börn og foreldrar mættu til leiks.  Allir krakkar fengu bækur og límmiða, þau skemmtu sér við söng, sögur og brúðuleikhús. Mikki refur heimsótti krakkana. Eftir hádegi var síðan messa þar sem foreldrar fermingarbarna voru sérstaklega hvattir til að mæta. Eftir messuna hitti Séra Fjölnir fermingarbörnin og foreldra þeirra þar sem rætt var um fermingarstarf vetrarins.</description>
Diskó á Hótel Höfn
      <description>Á föstudagskvöld mun Hornfirska skemmtifélagið frumsýna tónlistardagskránna Diskó á Hótel Höfn. Fyrirhugað er að sýningarnar verði fjórar og síðan mun félagið flytja dagskránna á Brodway í Reykjavík þann 22. október. Í tengslum við sýninguna á Hótel Höfn er boðið upp á helgarpakka sem saman standa af tveggja rétta málsverði með kaffi og konfekti, diskó-sýningu, dansleik og gistingu í tvær nætur í tveggja manna herbergi. Þetta er þriðja sýningin sem Hornfirska skemmtifélagið stendur fyrir en áður voru það sýningarnar Slappaðu af og Með allt á hreinu.</description>
      <alt>Diskó á Hótel Höfn</alt>
Einarslundur formlega tekinn í notkun
      <description>Lundurinn við Miðfjárhúshól sem er yfirleitt er kallaður Einarslundur var formlega tekinn í notkun í gær sem fuglaskoðunar- og útivistarstaður og er hann nú öllum opinn. Margir þekkja lundinn undir nafninu Ugluskógur en hann er við Miðfjárhúshól þar sem landmælingarstöðin stendur austan megin við pípuhliðið. Einar Hálfdánarson byrjaði að planta trjám við hólinn um 1950 og telja má Einar sem fyrsta skóræktarmanninn í Austur-Skaftafellssýslu. Í Einarslundi er mest af barrtrjám en einnig nokkuð af lauftrjám. Margar tegundir fugla hafa sést í og við lundinn og finnast þar stokkandar og skógarþrastarhreiður á hverju ári. Fuglaáhugamenn hafa verið tíðir gestir í Einarslundi um árabil og er óhætt að fullyrða að Einari hafi ekki leiðst þær gestakomur. Einar afhenti Félagi Fuglaáhugamanna lundinn á þessu ári  þegar hann dró sig í hlé af heilsufarsástæðum og í maí á þessu ári afhenti Sveitarfélagið Hornafjarðar félaginu svæðið umhverfis lundinn til umsjónar.</description>
Minnkaði um 8 tonn á leiðinni til Parísar
      <description>Ísjakinn sem var 22 tonn þegar hann var fluttur frá Jökulsárlóni með Eimskip til Rotterdam og þaðan landleiðina til Parísar minnkaði um 8 tonn á leiðinni samkvæmt upplýsingum frá Ara Trausta Guðmundssyni við Morgunblaðið í morgun og gefur Ari Trausti jakanum 10 daga þar til hann verður bráðnaður  (mbl.is). Ísjakinn verður tákn Íslands á sýningunni Hátíð menningar, vísinda og atvinnulífskynningar, sem fram fer í Frakkland og hefst sjálf sýningin í dag og stendur í 14 daga. Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr og Ari Trausti Guðmundsson hafa séð um undirbúning fyrir sýninguna á samt Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra.</description>
Gekk bersessgang og vann óbætanlegt tjón á safnmunum
      <description>Brotist var inn í Byggðarsafn A-Skaft aðfaranótt laugardagskvölds og þar unnið óbætanlegt tjón. Það var athugull vegfarandi sem staddur var við safnið um miðjan laugardag sem tók eftir ummerkjum um innbrotið og lét vita. Að sögn Björns Arnarsonar safnsvarðar hafði skemmdarvargurinn brotið glugga sem hann notaði til að komast inn í safnið, þar gekk hann bersessgang og vann óbætanlegt tjón á safnmunum. Lögreglan á Höfn sem vinnur að rannsókn málsins segir að sá sem braust inn í safnið hafi ekki gert það til að stela, heldur var þar um heina skemmdarfíkn að ræða.</description>
Félagsmiðstöðvarin Þrykkjan komin á fullt.
      <description>Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnnar hófst miðvikudaginn 15. september. Opið er fimm daga vikunnar fyrir börn og unglinga. Nýtt Þrykkjuráð var kosið á kosningaballi föstudaginn 17.september og voru margir í framboði. Í Þrykkjuráð 2004 hlutu þessi kosningu: úr 10. bekk, Assa Jónsdóttir, Haraldur Bjarnason, Jóhann Kiesel og Ægir Olgeirsson, úr 9. bekk, Margrét Vignisdóttir, Sandra Rán Ásgrímsdóttir og Særós Ester Leifsdóttir, úr 8. bekk, Andri Ágústsson, Ottó Gunnarsson og Sævar Snorrason. Formaður ráðsins er Assa. Ráðið og starfsmenn hafa haldið hugmyndafund og í framhaldinu verður haldinn vinnufundur þar sem hugmyndirnar verða útfærðar og hluti þeirra síðan framkvæmdur í vetur.  Þrykkjan er vel búin tækjum s.s. billjardborðum, borðtennisborðum, playstation tölvu, píluhring, fótboltaspilum og sjónvarpi. Þrykkjan er í Samfés sem eru Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Þrykkjan tekur þátt í viðburðum innan Samfés s.s. söngvakeppninni, Samfésballinu, landsmóti, spurningakeppninni ofl.</description>
Rúmlega 400 grunnskólabörn eru heima þessa dagana
      <description>Eins og alþjóð veit eru grunnskólakennarar í verkfalli og það lítur hreint ekki vel út í samningamálum þeirra. Við Hornfirðingar förum ekki varhluta af verkfallinu. Öll grunnskólabörnin okkar, rúmlega 400 talsins, eru heima þessa dagana enda allir kennarar á Hornafirði í Kennarasambandi Íslands, því stéttarfélagi sem semur við Samband íslenskra sveitafélaga fyrir hönd kennara.  Það eru þó ekki allir starfsmenn grunnskólanna í verkfalli.  Húsverðir, skólaliðar, stuðningsfulltrúar, skrifstofufólk, starfsfólk mötuneyta og skólastjórnendur eru ekki í verkfalli. Þetta fólk mætir allt saman til vinnu og reynir að finna verkefni sem ekki teljast í verkahring kennara. Í skólunum er núna tekið til og þrifið eins og líf liggi við. Gárungarnir segja að ekki hafi verið svona hreint í skólunum síðan í síðasta verkfalli fyrir níu árum. Þess má þó geta að í því verkfalli voru stuðningsfulltrúar varla farnir að sjást í grunnskólum Hornafjarðar og engir skólaliðar.</description>
Setja punktinn yfir sumarstarfið
      <description>Uppskeruhátíð yngri flokka Sindra fer fram miðvikudaginn í næstu viku á Hótel Höfn. Hátíðin sem haldin er um þetta leiti á hverju ári er til að setja punktinn yfir sumarstarfið sem eins og undanfæri ár var mjög árangursríkt. Það eru um 150 krakkar og 6 þjálfarar sem hafa tekið þátt í sumarstarfinu. Á hótelinu verður boðið er upp á pizzur og gos ásamt því að þjálfarar bjóða upp á skemmtidagskrá. Allir krakkarnir fá viðurkenningu sem er peningaverðlaun með mynd af fótboltamanni. Uppskeruhátíðin þýðir ekki að krakkarnir séu hættir að spila fótbolta þar til næsta sumar því nú eru menn byrjaðir æfingar að nýju og með tilkomu nýja sparkvallarins þá geta menn æft allan veturinn úti svo fremur sem veður leyfir.</description>
Stríðsleikir í Lingey
      <description>Eflaust hafa margir velt því fyrir sér hvor búið sé að reisa kvikmyndaver í Lyngey þar sem sjá má kofa og ýmislegt annað í líkingu bygginga, nei ekki er það kvikmyndaver því að þarna hefur Litboltafélag Hornafjarðar búið til keppnisvöll þar sem farið er í stríðsleiki. Leikirnir hafa að mestu farið fram um helgar, þá mæta keppendur og skipta sér í lið og hefja leikinn. Það eru um 25 manns sem taka þátt í leiknum þar sem hver og einn er með byssu sem er tengd koltvístringshylki og með skot sem eru fyllt með málningu, fitu og sápu. ,,Það getur verið nokkuð vont að fá skot í sig ef skotið er af stuttu færi” sagði einn þátttakandinn en bætti við að sjálfsögðu hörkuðu menn það af sér.</description>
Fyrirlestur ,,Nýjar leiðir – Nýr líkami
      <description>Næstkomandi föstudag mun Sporthöllin standa fyrir fyrirlestri sem er hluti af grenningardögum Sporthallarinnar. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig má hámarka árangur með réttri notkun fæðubótarefna, þjálfunaraðferðir fyrir nýja kynslóð líkamsræktarfólks, grunn-næring – nýtt upphaf, hvernig hægt er að reikna út kaloríu-inntöku á fljótlegan og einfaldan hátt og nýjar leiðir til að lækka fituprósentu. Fyrirlesari er Unnar Karlsson sem hefur m.a. haldið fyrirlestra um árangurs-aukningu og fitumissi fyrir fólk á öllum aldri og þjálfað ótal einstaklinga sem fóru í gegnum Líkami-fyrir-Lífið áætlunina frá árunum 1999-2002. Hann var einnig fyrstur Íslendinga til að ljúka Body for Life prógrami EAS Hann hefur þjálfað bæði fitness keppendur og keppendur í vaxtarrækt, handbolta, fótbolta, og körfubolta leikmenn.</description>
Hárgreiðslustofan Jaspis er 15 ára í dag
      <description>Fyrirtækið sem nú er starfrækt í Miðbæ var fyrst opnað að Austurbraut 10 og var þar einnig rekin snyrtistofa en það voru þær Heiða Dís Einarsdóttir og Ólöf Guðrún Helgadóttir sem þar tóku saman höndum og snyrtu Hornafirðinga og nærsveitamenn frá toppi til táar í orðsins fyllstu merkingu. Þær stöllur fluttu sig síðan um set á Hafnarbrautina og unnu þar saman þar til Ólöf flutti til Reykjavíkur og var starfsemin þá flutt í húsnæðið þar sem nú hýsir íþróttafélagið Sindra. Þar setti Heiða Dís einnig upp snyrtivöruverslun og hefur rekið hana samhliða hársnyrtistofunni. Heiða Dís verslar með hinar geysivinsælu No Name vörur og er nýja litalínan væntanleg í október.</description>
Árgangur 49 og 50 hittust um helgina
      <description>Bekkjarmót eru alltaf skemmtileg og þegar að langur tími líður á milli móta þá er ákaflega gaman að sjá breytingarnar á fólkinu. Um helgina hittust árgangar 49/50 og var byrjað á því að hittist í Pakkhúsinu í morgunmat. Þar var heiðursgestur Árni Stefánsson sem var kennari þeirra og skólastjóri í Hafnarskóla og Svava Sverrisdóttir kona hans. Úr pakkhúsinu var haldið á Birni Lóðs út á fjörur þar sem rúta beið eftir hópnum, þaðan var ekið út á Höfn með viðkomu á tökustað Bjólfskviðu eða Bjórskviðu eins og einn bekkjarfélaginn vildi kalla staðinn þar sem hópurinn stoppaði til að drekka kaffi.</description>
Slátrun sauðfjár hefst í dag
      <description>Sauðfjárflutningabíll KASK mætti með fyrsta farminn af sauðfé í gær og voru það um 350 rollur frá Breiðdalsvík. Slátrun sauðfjár hefst í dag og er áætlað að slátrað verði þar um 25 þúsund fjár á sláturvertíðinni sem er aðeins minna en var síðasta haust. Sá háttur verður hafður á að þessu sinni að Sláturfélagið Búi er undirverktaki Norðlenska og mun Norðlenska kaupa kjötið beint af bændum. Þetta mun vera vegna þess að Sláturfélaginu Búa ásamt fleiri sláturhúsum um baktryggingu hjá Byggðastofnun vegna afurðarlána frá Landsbankanum. Að sögn Einars Karlssonar sláturhússtjóra þá vantar enn fólk í vinnu og geta áhugasamir haft samband við hann. Sláturvertíðin stendur í 5 vikur miðað við að sláturhúsið sé fullmannað.</description>
Flikk heldur upp á 5 ára afmæli
      <description>Hársnyrtistofan Flikk heldur upp á fimm ára afmæli sitt þessa dagana. Birna Sóley Sigurðardóttir hársnyrtimeistari og förðunarfræðingur er eigandi Flikk. Nokkru eftir heimkomuna að loknu námi í Reykjavík hófst hún og Egill Benediktsson eiginmaður hennar, handa við að byggja bílskúrinn upp og innrétta hann fyrir hársnyrtistofu. Ég  ákvað í upphafi að byggja þetta allt almennilega upp strax  og einnig að bjóða upp á ýmsar vörur aðrar en hársnyrtivörur svo sem ilmvötn, handtöskur, ekta skartgripi, förðunarvörur og ýmislegt fleira segir Birna Sóley. Þetta eru góðar vörur fyrir konur og karla á öllum aldri og það er ekkert kynslóðabil hjá okkur hér. Ég hef verið ein að vinna á stofunni þar til í fyrra að ég tók nema í hársnyrtingu.</description>
NAUST fagnar stækkun Þjóðgarsins í Skaftafelli
      <description>Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST) hafa sent Umhverfisráðuneytinu bréf þar sem þau fagna að ákveðið hefur verið að stækka Þjóðgarðinn í Skaftafelli. Þar segja samtökin að stækka þjóðgarðinn með því að tengja Lakagígja við hann, sé skynsamlegt skref að Vatnajökulsþjóðgarði framtíðarinnar. Þau segja það einnig fagnaðarefni að Skaftafell verði sett á Heimsminnjaskrá UNESCO og þetta tvennt sé þýðingarmikið fyrir náttúruvernd og búsetu í Skaftafellssýslum. Samtökin telja áriðandi að settar verði frá upphafi skýrar reglur varðandi akstur ökutækja innan þjóðgarðsins, bæði á jökuli en ekki síst á láglendið, þar sem í dag er töluvert um utanvega akstur. Nauðsynlegt sé að merkja vegi og slóða sem aka má á en loka öðrum. Samtökin segja í bréfi sínu að í dag sé þetta ábótavant á landsvæðum sem munu bætast við þjóðgarðinn.</description>
Krakkablak, ný íþróttagrein á Hornafirði
      <description>Mikilvægi þess að stunda holla og góða hreyfingu verður seint ofmetið. Fjölbreytt framboð íþróttagreina er mikilvægt til að auka líkurnar á að fleiri finni íþróttagrein við sitt hæfi. Því er því ánægjulegt að geta sagt frá því að nú eru að hefjast æfingar á nýrri íþróttagrein hér á Hornafirði. Þessi nýja grein er blaklíkur leikur sem nefnist krakkablak (Kidsvolley). Hér er á ferðinni byltingarkennd aðferð við að kenna blak í yngstu aldurshópunum og einnig eldri byrjendum. Hingað til hefur verið talið vonlítið að byrja að kenna krökkum blak fyrr en við 10-12 ára aldurinn vegna þess hversu tæknilega erfið íþróttin er.</description>
      <alt>Krakkablak</alt>
Grasvöllurinn tilbúinn í sparkið
      <description>Lokið er lagningu gerfigrass á sparkvöllinn við íþróttahúsið og aðeins er eftir að snyrta við völlinn og setja upp flóðlýsingu. Þetta er alveg bylting fyrir krakkana að fá þessa aðstöðu segir Magnús Jónasson í Blómalandi. Hér hefur verið fullt af krökkum, strákum og stelpum að leika sér en það er næsta víst  að margir af þessum krökkum
|nl| hefðu eytt kvöldinu við tölvuna heima ef völlurinn væri ekki. Það er ekki vafi á að sparkvöllurinn á eftir að sanna gildi sitt  og krakkarnir njóta sín vel þar. Magnús og Albert Eymundsson létu eftir sér að prófa völlinn aðeins svona rétt til að finna gömlu fótbolta tilfinninguna.</description>
Bjóða því uppá viðtals- og fræðslutíma fyrir ungt fólk
      <description>Hjúkrunarfræðingar á Heilsugæslustöðinni á Hornafirði ætla að verða með opna móttöku fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára og bjóða því uppá viðtals og fræðslutíma á heilsugæslustöðinni. Þessi opna móttaka verður einu sinni í viku, á mánudögum frá kl.16.30 til 18.00 og verður fyrsti tíminn 20. september. Þessi þjónusta er fólki að kostnaðarlausu og tímapantanir óþarfar, bara kíkja við vilji viðkomandi vita meira um t.d. kynþroskann, kynsjúkdóma, getnaðarvarnir, þunglyndi, kvíða, offitu og margt fleira. Áslaug Valsdóttir ljósmóðir er ein þeirra sem að þessu framtaki standa segir að víða á heilsugæslustöðvum í Reykjavík sé boðið upp á þessa þjónustu og á einhverjum stöðum á landsbyggðinni. Okkur hér fannst tími til kominn að við gerðum þetta líka og það hefur tekið okkur ár að undirbúa þetta og ýta því af stað segir Áslaug.</description>
Tjón í Svínafelli í Öræfum vegna grjótfoks
      <description>Veðurofsinn sem gekk yfir Öræfasveit í morgun olli einnig tjóni í Svínafelli.
|nl|Skemmdir komu undan grjótfoki í flest allar rúður í litlu gestahúsunum og önnur hlið þjónustuskálans er öll grjótbarin. Eldhúsbíll sem þar var fauk á hliðina en ekki var búið að koma honum á hjólin í dag og því ekki vitað um skemmdir á honum en ljóst er að allt inni í honum er í einum hrærigraut , sagði Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi. Fólk sem var í litlu húsunum síðustu nótt sagði að mikið hefði gengið á og að húsin hefðu skolfið hressilega og grjóthríðin bulið á þeim.</description>
Það kom eins og ægileg sprenging
      <description>Eins og sagt var frá hér í morgun hefur orðið tugmilljóna tjón á Hótel Skaftafelli í Freysnesi og þegar fréttamaður vefsins hafði samband við Jón Benediktsson og Önnu Maríu Ragnarsdóttur hóteleigendur  kl. 9.30 var enn mikill veðurofsi og ekki búið að kanna tjónið sem er gífurlegt. Það voru um 40 manns hér í nótt, hópur erlendra ferðamanna, mjólkurbílstjórar og starfsfólk sem sluppu öll ómeidd sagði Jón. Fólkið var flutt með dreka björgunarsveitarinnar í þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. Meðan beðið var komu drekans frá Fagurhólsmýri beið fólkið í kjallara hótelsins. Starfsmaður hótelsins vaknaði við að glerbrotum rigndi yfir hann, sama var með aldraða konu, hún vaknaði í glerbrotahrúgu þegar þak af einni svefnherbergisálmunni fauk af. Það kom eins og ægileg sprenging og  segir Jón að sennilegt sé að þakið hafi þá splundrast, svo fauk  það um allt,  braut og bramlaði glugga og um allt húsið. Það er hífandi rok hér inni í hótelinu núna og við getum ekkert gert eða kannað skemmdir nánar ennþá vegna veðurofsans.</description>
Átthjól prófað sem björgunartæki við Hornafjarðarflugvöll
      <description>Flugmálastjórn hélt á dögunum kynningu fyrir starfsmenn Flugmálastjórnar á Hornafjarðarflugvelli á átthjóli sem gæti reynst heppilegt björgunartæki við flugvöllinn. Á svæðinu sunnan við flugbrautina og víða meðfram firðinum eru leirur sem öll farartæki hafa setið föst í. Það fór eins með átthjólið og önnur farartæki, það komst ekki yfir leirudrulluna sem var næst landinu. Ekki er flugmálastjórn þó búin að gefa þetta upp á bátinn því þeir ætla að koma aftur með gripinn útbúinn með beltum og skoða hvort það gangi ekki betur. Átthjólið hefur reynst mjög vel í Noregi, það fer yfir flestar torfærur hvort sem er á landi eða á vötnum og þykir gott farartæki í snjó.</description>
Veðurofsinn í nótt og morgun
      <description>Miklar skemmdir urðu í Freysnesi vegna veðursins  í morgun þegar þak af álmu fauk í heilu lagi og lenti á tengibyggingu og sem voru á stæðinu við hótelið. Talið að tjónið sé um tug milljóna. Gestir sem voru á hótelinu voru fluttir í Skaftafell en ekki urðu slys á fólki. Talið er að vindhraðinn hafi farið í 50 m/s. Ekki þurfti að kalla út Björgunarsveitarmenn á Höfn vegna veðurofsans í nótt og að sögn Lögreglunnar þá hafa þeir ekki fengið neina tilkynningu vegna veðursins fram að þessu. Víða má sjá ruslatunnur á víðavangi sem hafa fokið, fiskikör við Bestfisk sem stóðu við húsið fuku yfir Óslandsveginn, smábátur losnaði og rak í land þar sem hann nú bíður þar til verður lægir og vindurinn velti fánaborgum við fyrirtæki á hliðina á nokkrum stöðum.</description>
Verslunarrekstur á Fagurhólsmýri hættir
      <description>Næstu helgi mun verslunarrekstur á Fagurhólsmýri hætta og Versluninni milli sanda lokað. Ólafur Sigurðsson í Svínafelli og fjölskylda eiga verslunina og  hafa leigt aðstöðu í verslunarhúsi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Ólafur gerði tilboð í verslunarhús Kask þar á staðnum ásamt íbúðarhúsi en samningar náðust ekki svo ekkert varð af kaupum. Ég opnaði verslunina 1.júní í fyrra og einnig gistingu í íbúðarhúsinu hér á Fagurhólsmýri segir Ólafur. Sumarið hefur gengið þokkalega en verslun í dag er erfið þar sem við kaupmenn fáum vöruna ekki á sambærilegu verði og lágvöruverslanirnar greiða fyrir þær. Verslunin var opin síðasta vetur  en hann segir að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir verslun þar yfir veturinn .</description>
Góð auglýsing fyrir ferðaþjónustuna
      <description>Taka 22 tonna ísjaka á Jökulsárlóni og flutningur hans til Parísar hefur vakið mikla athygli ekki síst í Frakklandi. Fimm franskir blaðamenn fylgdust með þegar  verið var að ná jakanum úr lóninu og koma honum á flutningabíl. Um morguninn áður ef jakatakan byrjaði bauð Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón blaðamönnum, ljósmyndurum og .fl í  siglingu um lónið og var mikil ánægja með ferðina ásamt því sem fyrir augu bar. Ekki er nokkur vafi á að þetta ísjaka dæmi eins og það leggur sig verður mikil og góð auglýsing fyrir ferðaþjónustuna í Sveitarfélaginu Hornafirði.</description>
Atvinnulausum fækkar í sveitarfélaginu
      <description>Atvinnuástand á Hornafirði er mjög gott og atvinnuleysisskráin hefur minnkað verulega mikið segir Hjördís Þóra Sigþórsdóttir formaður Vökuls Stéttarfélags. Síðastliðinn föstudag voru 14 manns, 9 konur og 5 karlar, skráðir atvinnulausir og vonir standa til að þessi tala lækki enn frekar næstu daga. Fiskvinnslur á staðnum hafa undanfarið ítrekað auglýst eftir fólki til starfa án teljanlegs árangurs. Hjördís telur ekki að ástæða sé að ætla að þeir sem eru á atvinnuleysisskránni vilji ekki fara í fiskvinnslu heldur sé þetta fólk sem ekki geti eða megi vera í fiski. Hjördís segir að ef fólk á atvinnuleysisbótum hafnar vinnu sem því býðst eru málefni viðkomandi tekin fyrir á fundi hjá úthlutunarnefnd og ef í ljós kemur að ekki er haldbær ástæða fyrir því er sá einstaklingur sviptur atvinnuleysisbótum í tvo mánuði.</description>
Listljósasýning í Mánagarði
      <description>Næstkomandi föstudagskvöld verður frumsýning í Mánagarði á Upphafinu sem er listljósasýning eftir Þorstein Grétar Sigurbergsson. Þorsteinn sem er frá Einholti á Mýrum hefur unnið mikið með Leikfélagi Hornafjarðar, fyrst sem leikari, síðar sem leikmyndahönnuður og leikstjóri, en síðustu árin hefur hann starfað mest sem ljósahönnuður og hefur hann m.a. hannað lýsingar fyrir Leikfélag Hveragerðis, Leikfélag Rangæinga, Sjónleik, Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Óperustúdíó Austurlands fyrir utan heimaaðilana.  Þorsteinn vann ákveðið frumkvöðlastarf þegar hann samdi listljósasýninguna Sólarhring árið 2000 sem fram fór í Hlöðunni á Fiskhól.</description>
Norræna skólahlaupið í veðurblíðunni í dag
      <description>Nemendur og starfsfólk Hafnar- og Nesjaskóla nýttu góða veðrið í dag til þátttöku í Norræna skólahlaupinu. Fyrirkomulag hlaupsins í Nesjaskóla er núna eins og undanfarin ár sem er þannig að þátttakendum er ekið í rútu inn að Meðalfellsrétt og þaðan er hlaupið heim í skóla. Þetta eru 2.5 km og stóðu þátttakendur sig með mikilli prýði þú eins og endranær Krakkarnir í Hafnarskóla hlupu um götur Hafnar. Hlaupið fer nú fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember. Þetta er í 20. skiptið sem Ísland tekur þátt í þessu samnorræna hlaupi og hefur frammistaða Íslends verið mjög góð miðað við frændþjóðir okkar, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.</description>
Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn
      <description>Hornfirðingurinn Hjalti Þór Vignisson var valinn úr hópi tólf umsækjenda í starf framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Hjalti lauk í vetur námi í stjórnmálafræði og hefur hann störf næstkomandi mánudag. Hjalti bjó í Reykjavík frá 19 ára aldri en kom alltaf heim á sumrin m.a. til að spila knattspyrnu og á hann að baki yfir 100 deildarleiki fyrir Sindra. Síðustu þrjú árin hefur hann síðan búið í Reykjavík og erlendis. Hjalti segist þess fullviss að mjög holt sé fyrir ungt fólk að fara að heiman og kynnast nýjum stöðum utanlands og innan og víkka þannig sjóndeildarhringinn, þá er maður svo tilbúinn að koma heim aftur. Fyrir okkur er Hornafjörður draumastaðurinn og við Guðrún, konan mín, og Salvör Dalla, litla dóttirin, erum alsæl að vera komin aftur hingað heim. Hjalti segist hlakka til að takast á við nýja starfið og núna ætla þau að fara að leita að húsnæði til að kaupa og búið er að fá leikskólapláss fyrir dótturina sem er á öðru árinu.</description>
      <alt>Hjalti Þór Vignisson</alt>