September
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og leiðtogi Framsóknarflokksins við Jökulsárlón   (úr myndasafni@jokulsarlon).
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og leiðtogi Framsóknarflokksins við Jökulsárlón (úr myndasafni @jokulsarlon).
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og leiðtogi Framsóknarflokksins við Jökulsárlón (úr myndasafni @jokulsarlon).

29.09.2004 September

Líflegt starf Framsóknarfélagsins

Vetrarstarf Framsóknarfélags Austur Skaftafellssýslu er að fara í gang og starfið með almennum fundi sem verður haldinn þriðjudaginn 5. október n.k. í húsi Slysavarnarfélagsins á Höfn. Dagskrá fundarins m.a. taka á bæjarmálum og munu fulltrúar framsóknar í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornfjarðar fara yfir hvað sé að gerast á þeim vígsstöðvum og sitja fyrir svörum. Einnig verður kosning fulltrúa á kjördæmaþingið sem fram fer í suðurkjördæmi í október. Í byrjun október er von á konum frá landsambandi framsóknarkvenna og munu þær halda fund fyrir framsóknarkonur í sveitarfélaginu. Aðalfundur félagsins verður síðan haldinn í lok október.

Í stjórn Framsóknarfélags Austur Skaftafellssýslu eru Margrét Ingólfsdóttir formaður, Björn Sigfinnsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir ritari, Reynir Arnarson gjaldkeri og Ólafur Sigurðsson meðstjórnandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica