September
Séra Fjölnir Ásbjörnsson
Séra Fjölnir Ásbjörnsson
Séra Fjölnir Ásbjörnsson

29.09.2004 September

Sunnudagaskólinn og fermingarundirbúningur

Sunnudagaskólinn hóf göngu sína á sunnudaginn var, 26. september, í Hafnarkirkju undir stjórn séra Fjölnirs Ásbjörnssonar sem ráðinn hefur verið til að leysa af séra Sigurð Kr. Sigurðsson í vetur. Mæting í sunnudagaskólann var góð en yfir 80 manns, börn og foreldrar mættu til leiks. Allir krakkar fengu bækur og límmiða, þau skemmtu sér við söng, sögur og brúðuleikhús. Mikki refur heimsótti krakkana. Eftir hádegi var síðan messa þar sem foreldrar fermingarbarna voru sérstaklega hvattir til að mæta. Eftir messuna hitti Séra Fjölnir fermingarbörnin og foreldra þeirra þar sem rætt var um fermingarstarf vetrarins.

Sunnudagaskólinn verður hér eftir á hverjum sunnudegi, til skiptis í Hafnarkirkju og í Bjarnaneskirkju. Næst verður sunnudagaskólinn í Bjarnanesi á sunnudaginn kemur, 3. október.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica