September
Diskó á Hótel Höfn
Diskó
Diskó á Hótel Höfn

28.09.2004 September

Diskó á Hótel Höfn

Á föstudagskvöld mun Hornfirska skemmtifélagið frumsýna tónlistardagskránna Diskó á Hótel Höfn. Fyrirhugað er að sýningarnar verði fjórar og síðan mun félagið flytja dagskránna á Brodway í Reykjavík þann 22. október. Í tengslum við sýninguna á Hótel Höfn er boðið upp á helgarpakka sem saman standa af tveggja rétta málsverði með kaffi og konfekti, diskó-sýningu, dansleik og gistingu í tvær nætur í tveggja manna herbergi. Þetta er þriðja sýningin sem Hornfirska skemmtifélagið stendur fyrir en áður voru það sýningarnar Slappaðu af og Með allt á hreinu.

Leikstjóri sýningarinnar er Kristín Gestsdóttir. Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í miða því aðeins örfáir miðar eru til á frumsýninguna.

Nánari upplýsingar um sýninguna

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica