Einarslundur formlega tekinn í notkun
Lundurinn við Miðfjárhúshól sem er yfirleitt er kallaður Einarslundur var formlega tekinn í notkun í gær sem fuglaskoðunar- og útivistarstaður og er hann nú öllum opinn. Margir þekkja lundinn undir nafninu Ugluskógur en hann er við Miðfjárhúshól þar sem landmælingarstöðin stendur austan megin við pípuhliðið. Einar Hálfdánarson byrjaði að planta trjám við hólinn um 1950 og telja má Einar sem fyrsta skóræktarmanninn í Austur-Skaftafellssýslu. Í Einarslundi er mest af barrtrjám en einnig nokkuð af lauftrjám. Margar tegundir fugla hafa sést í og við lundinn og finnast þar stokkandar og skógarþrastarhreiður á hverju ári. Fuglaáhugamenn hafa verið tíðir gestir í Einarslundi um árabil og er óhætt að fullyrða að Einari hafi ekki leiðst þær gestakomur. Einar afhenti Félagi Fuglaáhugamanna lundinn á þessu ári þegar hann dró sig í hlé af heilsufarsástæðum og í maí á þessu ári afhenti Sveitarfélagið Hornafjarðar félaginu svæðið umhverfis lundinn til umsjónar.
Af tilefni opnunarinnar í gær afhentu Brynjúlfur Brynjólfsson og Björn Arnarson Einari þakkarskjal frá Félagi fuglaáhugamanna. Um helgina var haldið landsmót fuglaáhugarmanna hér á Höfn og voru þátttakendur frá suðvesturhorninu. Landsmótinu var formlega slitið við opnun Einarslundar.





Skrifa athugasemd