Minnkaði um 8 tonn á leiðinni til Parísar
Ísjakinn sem var 22 tonn þegar hann var fluttur frá Jökulsárlóni með Eimskip til Rotterdam og þaðan landleiðina til Parísar minnkaði um 8 tonn á leiðinni samkvæmt upplýsingum frá Ara Trausta Guðmundssyni við Morgunblaðið í morgun og gefur Ari Trausti jakanum 10 daga þar til hann verður bráðnaður (mbl.is). Ísjakinn verður tákn Íslands á sýningunni Hátíð menningar, vísinda og atvinnulífskynningar, sem fram fer í Frakkland og hefst sjálf sýningin í dag og stendur í 14 daga. Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr og Ari Trausti Guðmundsson hafa séð um undirbúning fyrir sýninguna á samt Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra.
Tuttugu íslensk fyrirtæki eru með kynningu í sérstökum sal í safninu og er ferðaþjónustan þar vel kynnt. Stórt skilti er fyrir framan ísjakann við safnið þar sem segir frá hvar hann var tekinn og hvað ísjaki er. Í anddyrinu verður Ari Trausti og hans menn með goshver sem þeir hafa hannað og í sýningarsalnum er myndvarpað kynningarmyndum frá Jökulsárlóni. Gólfið er eins og gengið sé á mosa, þar eru tvær keilur, úr rauðamöl og dökkri möl og í loftinu er varpað norðurljósum og m.fl.





Skrifa athugasemd