Gekk bersessgang og vann óbætanlegt tjón á safnmunum
Brotist var inn í Byggðarsafn A-Skaft aðfaranótt laugardagskvölds og þar unnið óbætanlegt tjón. Það var athugull vegfarandi sem staddur var við safnið um miðjan laugardag sem tók eftir ummerkjum um innbrotið og lét vita. Að sögn Björns Arnarsonar safnsvarðar hafði skemmdarvargurinn brotið glugga sem hann notaði til að komast inn í safnið, þar gekk hann bersessgang og vann óbætanlegt tjón á safnmunum. Lögreglan á Höfn sem vinnur að rannsókn málsins segir að sá sem braust inn í safnið hafi ekki gert það til að stela, heldur var þar um heina skemmdarfíkn að ræða.
Biður lögreglan alla sem einhverjar upplýsingar geta gefið um grunsamlegar ferðir aðfaranótt laugardagsins að hafa samband.





Skrifa athugasemd