September
Úr myndasafni
Úr myndasafni
Það er alltaf eitthvað um að vera í Þrykkjunni (úr myndasafni)

24.09.2004 September

Félagsmiðstöðvarin Þrykkjan komin á fullt.

Fréttatilkynning frá Þrykkjunni

Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnnar hófst miðvikudaginn 15. september. Opið er fimm daga vikunnar fyrir börn og unglinga. Nýtt Þrykkjuráð var kosið á kosningaballi föstudaginn 17.september og voru margir í framboði. Í Þrykkjuráð 2004 hlutu þessi kosningu: úr 10. bekk, Assa Jónsdóttir, Haraldur Bjarnason, Jóhann Kiesel og Ægir Olgeirsson, úr 9. bekk, Margrét Vignisdóttir, Sandra Rán Ásgrímsdóttir og Særós Ester Leifsdóttir, úr 8. bekk, Andri Ágústsson, Ottó Gunnarsson og Sævar Snorrason. Formaður ráðsins er Assa. Ráðið og starfsmenn hafa haldið hugmyndafund og í framhaldinu verður haldinn vinnufundur þar sem hugmyndirnar verða útfærðar og hluti þeirra síðan framkvæmdur í vetur. Þrykkjan er vel búin tækjum s.s. billjardborðum, borðtennisborðum, playstation tölvu, píluhring, fótboltaspilum og sjónvarpi. Þrykkjan er í Samfés sem eru Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Þrykkjan tekur þátt í viðburðum innan Samfés s.s. söngvakeppninni, Samfésballinu, landsmóti, spurningakeppninni ofl.


Nokkrir fastir viðburðir eru í Þrykkjunni má þar nefna sundstuðið, útilegu í íþróttahúsi, hrekkjavökuna, Þrykkjuþrautir, söngvakeppnina, jólapakkaballið, ýmiskonar keppnir í tækjum, íþróttakvöld, rokktónleika og svona mætti áfram telja. Þá hefur leikhópurinn Lopi sýnt leikrit sín í Þrykkjunni undanfarin ár. Starfsmenn í Þrykkjunni eru: Sindri Ragnarsson, Eva Lind Björnsdóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi.
Börn og unglingar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Þrykkjunni í vetur. Allir í Þrykkjuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica