Rúmlega 400 grunnskólabörn eru heima þessa dagana
Hafnarskóli
Eins og alþjóð veit eru grunnskólakennarar í verkfalli og það lítur hreint ekki vel út í samningamálum þeirra. Við Hornfirðingar förum ekki varhluta af verkfallinu. Öll grunnskólabörnin okkar, rúmlega 400 talsins, eru heima þessa dagana enda allir kennarar á Hornafirði í Kennarasambandi Íslands, því stéttarfélagi sem semur við Samband íslenskra sveitafélaga fyrir hönd kennara. Það eru þó ekki allir starfsmenn grunnskólanna í verkfalli. Húsverðir, skólaliðar, stuðningsfulltrúar, skrifstofufólk, starfsfólk mötuneyta og skólastjórnendur eru ekki í verkfalli. Þetta fólk mætir allt saman til vinnu og reynir að finna verkefni sem ekki teljast í verkahring kennara. Í skólunum er núna tekið til og þrifið eins og líf liggi við. Gárungarnir segja að ekki hafi verið svona hreint í skólunum síðan í síðasta verkfalli fyrir níu árum. Þess má þó geta að í því verkfalli voru stuðningsfulltrúar varla farnir að sjást í grunnskólum Hornafjarðar og engir skólaliðar.
Einnig hafa bæst við störf ritar og fleira síðan í því verkfalli svo starfsumhverfi skólanna er töluvert ólíkt því sem var í sex vikna verkfallinu 1995. Þannig eru um 20 starfsmenn í grunnskólum Hornafjarðar sem mæta til vinnu auk 8 skólastjórnenda. Ekki er víst að hægt verði að finna störf fyrir starfsfólk skólanna dragist verkfallið á langinn en búið er að gera langan lista yfir þau störf sem hægt er að sinna og vonandi lýkur verkfallinu áður en þeim verkefnalista verður lokið.
Í verkfalli er lengd viðvera starfrækt eftir kl. 14:00 í Hafnarskóla eins og var áður en verkfall skall á. Þó ekki mæti mörg börn þá finnst þeim samt ósköp gott að komast þangað og hitta Evu Lind og hina krakkana.





Skrifa athugasemd