Setja punktinn yfir sumarstarfið
Uppskeruhátíð yngri flokka Sindra fer fram miðvikudaginn í næstu viku á Hótel Höfn. Hátíðin sem haldin er um þetta leiti á hverju ári er til að setja punktinn yfir sumarstarfið sem eins og undanfæri ár var mjög árangursríkt. Það eru um 150 krakkar og 6 þjálfarar sem hafa tekið þátt í sumarstarfinu. Á hótelinu verður boðið er upp á pizzur og gos ásamt því að þjálfarar bjóða upp á skemmtidagskrá. Allir krakkarnir fá viðurkenningu sem er peningaverðlaun með mynd af fótboltamanni. Uppskeruhátíðin þýðir ekki að krakkarnir séu hættir að spila fótbolta þar til næsta sumar því nú eru menn byrjaðir æfingar að nýju og með tilkomu nýja sparkvallarins þá geta menn æft allan veturinn úti svo fremur sem veður leyfir.
Næstu mótið hjá flestum flokkur er Íslandsmeistaramótið innanhúss sem hefst í nóvember, síðan er það deildarbikarinn eftir áramót. Þjálfarar yngri flokkanna vildu koma á framfæri þakklæti til foreldra krakkana fyrir vel unnin störf í sumar.





Skrifa athugasemd