September
Æfingarsvæði litboltafélagsins
Æfingarsvæði litboltafélagsins
Æfingarsvæði litboltafélagsins

23.09.2004 September

Stríðsleikir í Lingey

Eflaust hafa margir velt því fyrir sér hvor búið sé að reisa kvikmyndaver í Lingey þar sem sjá má kofa og ýmislegt annað í líkingu bygginga, nei ekki er það kvikmyndaver því að þarna hefur Litboltafélag Hornafjarðar búið til keppnisvöll þar sem farið er í stríðsleiki. Leikirnir hafa að mestu farið fram um helgar, þá mæta keppendur og skipta sér í lið og hefja leikinn. Það eru um 25 manns sem taka þátt í leiknum þar sem hver og einn er með byssu sem er tengd koltvístringshylki og með skot sem eru fyllt með málningu, fitu og sápu. ,,Það getur verið nokkuð vont að fá skot í sig ef skotið er af stuttu færi" sagði einn þátttakandinn en bætti við að sjálfsögðu hörkuðu menn það af sér.

Til stendur að reisa turn á svæðinu og verður hann fyrir dómara, en eins og í öllum keppnum þá getur komið upp ágreiningur og í þessari hver skaut hvern fyrst. Sá sem verður fyrir skoti réttir upp hönd og labbar út af svæðinu og bíður átekta eftir að næsti leikur hefjist.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica