Fyrirlestur ,,Nýjar leiðir – Nýr líkami
Næstkomandi föstudag mun Sporthöllin standa fyrir fyrirlestri sem er hluti af grenningardögum Sporthallarinnar. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig má hámarka árangur með réttri notkun fæðubótarefna, þjálfunaraðferðir fyrir nýja kynslóð líkamsræktarfólks, grunn-næring, nýtt upphaf, hvernig hægt er að reikna út kaloríu-inntöku á fljótlegan og einfaldan hátt og nýjar leiðir til að lækka fituprósentu. Fyrirlesari er Unnar Karlsson sem hefur m.a. haldið fyrirlestra um árangurs-aukningu og fitumissi fyrir fólk á öllum aldri og þjálfað ótal einstaklinga sem fóru í gegnum Líkami-fyrir-Lífið áætlunina frá árunum 1999-2002. Hann var einnig fyrstur Íslendinga til að ljúka Body for Life prógrami EAS Hann hefur þjálfað bæði fitness keppendur og keppendur í vaxtarrækt, handbolta, fótbolta, og körfubolta leikmenn.
Fyrirlesturinn verður í Nýheimum n.k. föstudag kl.20 og er aðgangseyrir kr. 1000. Fyrir þá sem vilja kynna sér tilboð á fæðubótarefnum þá verður Unnar einnig staddur í Sporthöllinni föstudaginn frá kl. 16-19 og laugardaginn frá 10-12.





Skrifa athugasemd