Hárgreiðslustofan Jaspis er 15 ára í dag
Fyrirtækið sem nú er starfrækt í Miðbæ var fyrst opnað að Austurbraut 10 og var þar einnig rekin snyrtistofa en það voru þær Heiða Dís Einarsdóttir og Ólöf Guðrún Helgadóttir sem þar tóku saman höndum og snyrtu Hornafirðinga og nærsveitamenn frá toppi til táar í orðsins fyllstu merkingu. Þær stöllur fluttu sig síðan um set á Hafnarbrautina og unnu þar saman þar til Ólöf flutti til Reykjavíkur og var starfsemin þá flutt í húsnæðið þar sem nú hýsir íþróttafélagið Sindra. Þar setti Heiða Dís einnig upp snyrtivöruverslun og hefur rekið hana samhliða hársnyrtistofunni. Heiða Dís verslar með hinar geysivinsælu No Name vörur og er nýja litalínan væntanleg í október.
Allt frá opnun stofunnar hefur sama hárlínan verið notuð og eru það Sebastian hárvörur sem einnig fást í versluninni ásamt fleiru. ,,Það verður engin afmælisveisla haldin í dag en það verður væntanlega eitthvað um að vera á haustdögum" sagði Heiða Dís að lokum.





Skrifa athugasemd