September
Árgangur 49 og 50 á bekkjarmóti í september 2004
Árgangur 49 og 50 á bekkjarmóti í september 2004
Árgangur 49 og 50 á bekkjarmóti í september 2004

20.09.2004 September

Árgangur 49 og 50 hittust um helgina

Bekkjarmót eru alltaf skemmtileg og þegar að langur tími líður á milli móta þá er ákaflega gaman að sjá breytingarnar á fólkinu. Um helgina hittust árgangar 49/50 og var byrjað á því að hittist í Pakkhúsinu í morgunmat. Þar var heiðursgestur Árni Stefánsson sem var kennari þeirra og skólastjóri í Hafnarskóla og Svava Sverrisdóttir kona hans. Úr pakkhúsinu var haldið á Birni Lóðs út á fjörur þar sem rúta beið eftir hópnum, þaðan var ekið út á Höfn með viðkomu á tökustað Bjólfskviðu eða Bjórskviðu eins og einn bekkjarfélaginn vildi kalla staðinn þar sem hópurinn stoppaði til að drekka kaffi.

Þegar út á Höfn var komið voru lögð blóm á minningarreitinn í Hafnakirkjugarði til minningar um látna bekkjarfélaga. Bekkjarmótið fór síðan fram á laugardagskvöldinu á Smyrlabjörgum þar sem Agnes Ingvarsdóttir stjórnaði veislunni af frábærri snilld. Síðasta bekkjarmót sem haldið var fyrir 15 árum var tekið upp á myndband og var það sýnt í veislunni og að sögn Bróa þá fer það ekkert á milli mála að það hafa orðið breytingar á fólkinu og var ákveðið að láta styttri tíma líða á milli móta og verður næsta haldið að 5 árum liðnum.



Á myndinni eru fremri röð frá vinstri, Steinþór Hafsteinsson, Elísabet Eyjólfsdóttir, Sædís Guðmundsdóttir, Sólveig Sveinbjörnsdóttir, Árni Stefánsson, Lucia Óskarsdóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Agnes Ingvarsdóttir og Ásta Sveinbjörnsdóttir
Í aftari röð frá vinstri er Snæbjörn Benediktsson, Valdimar Olgeirsson, Albert Eymundsson, Örn Arnarsson og Jóhann Einarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica