Slátrun sauðfjár hefst í dag
Sauðfjárflutningabíll KASK mætti með fyrsta farminn af sauðfé í gær og voru það um 350 rollur frá Breiðdalsvík. Slátrun sauðfjár hefst í dag og er áætlað að slátrað verði þar um 25 þúsund fjár á sláturvertíðinni sem er aðeins minna en var síðasta haust. Sá háttur verður hafður á að þessu sinni að Sláturfélagið Búi er undirverktaki Norðlenska og mun Norðlenska kaupa kjötið beint af bændum. Þetta mun vera vegna þess að Sláturfélaginu Búa ásamt fleiri sláturhúsum um baktryggingu hjá Byggðastofnun vegna afurðarlána frá Landsbankanum. Að sögn Einars Karlssonar sláturhússtjóra þá vantar enn fólk í vinnu og geta áhugasamir haft samband við hann. Sláturvertíðin stendur í 5 vikur miðað við að sláturhúsið sé fullmannað.
Afurðarsalan verður sett í gang næstu daga og er fólk hvatt til að taka slátur nógu snemma en ekki draga það fram á síðustu daga sláturvertíðarinnar.





Skrifa athugasemd