NAUST fagnar stækkun Þjóðgarsins í Skaftafelli
Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST) hafa sent Umhverfisráðuneytinu bréf þar sem þau fagna að ákveðið hefur verið að stækka Þjóðgarðinn í Skaftafelli. Þar segja samtökin að stækka þjóðgarðinn með því að tengja Lakagígja við hann, sé skynsamlegt skref að Vatnajökulsþjóðgarði framtíðarinnar. Þau segja það einnig fagnaðarefni að Skaftafell verði sett á Heimsminnjaskrá UNESCO og þetta tvennt sé þýðingarmikið fyrir náttúruvernd og búsetu í Skaftafellssýslum. Samtökin telja áriðandi að settar verði frá upphafi skýrar reglur varðandi akstur ökutækja innan þjóðgarðsins, bæði á jökuli en ekki síst á láglendið, þar sem í dag er töluvert um utanvega akstur. Nauðsynlegt sé að merkja vegi og slóða sem aka má á en loka öðrum. Samtökin segja í bréfi sínu að í dag sé þetta ábótavant á landsvæðum sem munu bætast við þjóðgarðinn.
Einnig kemur fram í bréfi þeirra til Umhverfisráðuneytisins eftirfarandi: Hvað varðar umferð reiðhjóla og hrossa telja samtökin einnig áríðandi að merkja vel og upplýsa ferðamannin um gildandi reglur, því þó að reglurnar eru skýrar eru þær lítt þekktar og erfitt fyrir innlenda sem erlenda gesti að átta sig á þeim. Raunin er sú að menn eru oft að brjóta lög í góðri trú. Reyndar er það þannig í dag að engar merktar reið- og hjólaleiðir eru í þjóðgarðinum í dag og heldur ekki á Lakasvæðinu, og er því töluverð vinna eftir svo að menn geta ferðast innan þjóðgarðsins á hestbaki og hjólandi á hefðbundnum leiðum með samviskuna í lagi. Töluvert er um að heimamenn ferðast í gegnum Skaftafellssýslur ríðandi. Stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli má ekki valda því að árekstrar verða milli heimamanna og þjóðgarðsins, og óskar NAUST eftir sveigjanleiki og skilningi þegar kemur að því að festa leiðir á kort. NAUST er tilbúið að veita aðstoð, ef óskað er eftir því.
Kafli V, 17.grein fjallar um ferðaþjónustu innan þjóðgarðsins. Þar kemur fram að ferðaþjónustu innan þjóðgarðsins skal skipulögð á grundvelli sjálfbærrar ferðamennsku. NAUST væntir þess að þetta eigi einnig við hverskonar rekstur Umhverfisstofnunnar innan þjóðgarðsins.
Tillögur að verndaráætlun og landnotkun fyrir þjóðgarðinn byggist á þekkingu á náttúrufari og menningarminjum og því telur NAUST að áríðandi er að efla rannsóknir á því sviði, innan þjóðgarðsins. Margt er enn óvitað um náttúrufar í Skaftafellssýslum, má þar til dæmis nefna eldgos í Öræfajökli, þróun tófustofnunnar í Skaftafelli og fjölda menningarminja. Undir bréfið ritar Ulla R. Pedersen, formaður NAUST.





Skrifa athugasemd