Grasvöllurinn tilbúinn í sparkið
Lokið er lagningu gerfigrass á sparkvöllinn við íþróttahúsið og aðeins er eftir að snyrta við völlinn og setja upp flóðlýsingu. Þetta er alveg bylting fyrir krakkana að fá þessa aðstöðu segir Magnús Jónasson í Blómalandi. Hér hefur verið fullt af krökkum, strákum og stelpum að leika sér en það er næsta víst að margir af þessum krökkum
hefðu eytt kvöldinu við tölvuna heima ef völlurinn væri ekki. Það er ekki vafi á að sparkvöllurinn á eftir að sanna gildi sitt og krakkarnir njóta sín vel þar. Magnús og Albert Eymundsson létu eftir sér að prófa völlinn aðeins svona rétt til að finna gömlu fótbolta tilfinninguna.
Allir Hornfirðingar vita um mikla og góða fortíð Alberts í fótboltanum og til að upplýsa fortíð Magnúsar í þeim málum þá var hann mikið í fótbolta á sínum yngri árum, eins og hann segir, og spilaði með Val og Breiðabliki, hætti um fermingu og byrjaði aftur sem gamalmenni þegar hann kom til Hornafjarðar. Maður var reyndar alltaf að leika sér í fótbolta en nú hef ég ekkert sparkað í bolta í fimm ár sagði Magnús.





Skrifa athugasemd