September
Séð heima að Svínafelli í Öræfum
Séð heim að Svínafelli í Öræfum
Séð heim að Svínafelli í Öræfum

16.09.2004 September

Tjón í Svínafelli í Öræfum vegna grjótfoks

Veðurofsinn sem gekk yfir Öræfasveit í morgun olli einnig tjóni í Svínafelli.
Skemmdir komu undan grjótfoki í flest allar rúður í litlu gestahúsunum og önnur hlið þjónustuskálans er öll grjótbarin. Eldhúsbíll sem þar var fauk á hliðina en ekki var búið að koma honum á hjólin í dag og því ekki vitað um skemmdir á honum en ljóst er að allt inni í honum er í einum hrærigraut , sagði Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi. Fólk sem var í litlu húsunum síðustu nótt sagði að mikið hefði gengið á og að húsin hefðu skolfið hressilega og grjóthríðin bulið á þeim.

Björgunarsveitin Kári í Öræfum var í Freysnesi í dag og hreinsuðu björgunarsveitarmenn svæðið við hótelið eftir ósköpin sem þar dundu á í morgun. Rafmagnslaust var í Freysnesi í kvöld og einnig var vatnslaust, þar sem rafmagnsdæla dælir vatni til hótelsins. Ekki var vitað hvort tækist að koma rafmagni á í kvöld. Smiðir hafa lítið getað aðhafst í kvöld vegna rafmagnsleysisins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica