Það kom eins og ægileg sprenging
Eins og sagt var frá hér í morgun hefur orðið tugmilljóna tjón á Hótel Skaftafelli í Freysnesi og þegar fréttamaður vefsins hafði samband við Jón Benediktsson og Önnu Maríu Ragnarsdóttur hóteleigendur kl. 9.30 var enn mikill veðurofsi og ekki búið að kanna tjónið sem er gífurlegt. Það voru um 40 manns hér í nótt, hópur erlendra ferðamanna, mjólkurbílstjórar og starfsfólk sem sluppu öll ómeidd sagði Jón. Fólkið var flutt með dreka björgunarsveitarinnar í þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. Meðan beðið var komu drekans frá Fagurhólsmýri beið fólkið í kjallara hótelsins. Starfsmaður hótelsins vaknaði við að glerbrotum rigndi yfir hann, sama var með aldraða konu, hún vaknaði í glerbrotahrúgu þegar þak af einni svefnherbergisálmunni fauk af. Það kom eins og ægileg sprenging og segir Jón að sennilegt sé að þakið hafi þá splundrast, svo fauk það um allt, braut og bramlaði glugga og um allt húsið. Það er hífandi rok hér inni í hótelinu núna og við getum ekkert gert eða kannað skemmdir nánar ennþá vegna veðurofsans.
Mikil heppni var að ekki fór verr þegar 4" trébútur 80 cm langur, kom gegnum rúðu eins herbergisins og lenti í rúminu hjá konu sem þar var. 15 metra langt hús, svefnherbergisálma, færðist um 4 fet af grunninum og gluggafög í henni opnuðust og eins var í gámaherbergjunum þar opnuðust gluggafögin. Læsingar á gluggunum einfaldlega héldu ekki sagði Jón og sama var í herbergjum þar sem fólk svaf. 6" planki kom inn um glugga í anddyri hótelsins og vindskeið liggur inni á gólfi í einu herberginu
Hluti úr þakinu lenti á rafmagnslínuna og skemmdi hana svo rafmagnslaust er á hótelinu. Grindverk með öflugum staurum kubbaðist í tvennt, allar flaggstangir liggja brotnar, allar rúður á barnum á efri hæð hótelsins eru brotnar eins rúður niðri í matsalnum. Steniklæðning á húsinu er stórskemmd og plankar standa inn í miðja veggi. Skemmdir munu vera á öllum húsum hótelsins en mismiklar og mikið er um rúðubrot.
Anna María segir Laufeyju Benediktsdóttur móður sína muna eftir svona veðri einu sinni, það var í Svínafelli árið 1947 og varð þá mikið tjóni. Hún sagði aðgestir þeirra hefðu tekið þessu öllu með stakri ró og verið alveg yndislegir og nágrannarnir komu að hjálpa þeim um leið og ferðafært var um sveitina og byrjað verður á að setja fyrir brotnu gluggana. Smiðir og menn frá tryggingunum eru einnig komnir á staðinn.
Hér má sjá fleiri myndir sem Sigurður Adólfsson tók af Hótel Skaftafelli




Skrifa athugasemd