September
Starfsmenn flugturnsins á Hornafjarðarflugvelli að prufukeyra @JonasFr
Starfsmenn flugturnsins á Hornafjarðarflugvelli að prufukeyra @JonasFr
Starfsmenn flugturnsins á Hornafjarðarflugvelli að prufukeyra @JonasFr

16.09.2004 September

Átthjól prófað sem björgunartæki við Hornafjarðarflugvöll

Flugmálastjórn hélt á dögunum kynningu fyrir starfsmenn Flugmálastjórnar á Hornafjarðarflugvelli á átthjóli sem gæti reynst heppilegt björgunartæki við flugvöllinn. Á svæðinu sunnan við flugbrautina og víða meðfram firðinum eru leirur sem öll farartæki hafa setið föst í. Það fór eins með átthjólið og önnur farartæki, það komst ekki yfir leirudrulluna sem var næst landinu. Ekki er flugmálastjórn þó búin að gefa þetta upp á bátinn því þeir ætla að koma aftur með gripinn útbúinn með beltum og skoða hvort það gangi ekki betur. Átthjólið hefur reynst mjög vel í Noregi, það fer yfir flestar torfærur hvort sem er á landi eða á vötnum og þykir gott farartæki í snjó.

Ásgeir Ágústsson á Hornafjarðarflugvelli segir að til þess að átthjólið kæmi að góðum notum á firðinum við björgunarstörf yrði utanborðsmótor settur á það og einnig yrði útbúinn góður gúmmífleki sem dreginn yrði á hjólinu. Það er engin spurning um að gripurinn er góður, en það þarf að sigrast á leiruvandamálinu okkar segir Ásgeir.
Vel útbúið átthjól kostar nokkuð á aðra milljón kr.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica