Veðurofsinn í nótt og morgun
Miklar skemmdir urðu í Freysnesi vegna veðursins í morgun þegar þak af álmu fauk í heilu lagi og lenti á tengibyggingu og sem voru á stæðinu við hótelið. Talið að tjónið sé um tug milljóna. Gestir sem voru á hótelinu voru fluttir í Skaftafell en ekki urðu slys á fólki. Talið er að vindhraðinn hafi farið í 50 m/s. Ekki þurfti að kalla út Björgunarsveitarmenn á Höfn vegna veðurofsans í nótt og að sögn Lögreglunnar þá hafa þeir ekki fengið neina tilkynningu vegna veðursins fram að þessu. Víða má sjá ruslatunnur á víðavangi sem hafa fokið, fiskikör við Bestfisk sem stóðu við húsið fuku yfir Óslandsveginn, smábátur losnaði og rak í land þar sem hann nú bíður þar til verður lægir og vindurinn velti fánaborgum við fyrirtæki á hliðina á nokkrum stöðum.
Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni á veðrið að ganga niður þegar líður framan að morgni., en snýst síðan í suðaustan 8-13 og dregur úr rigningu. Suðaustan 10-15 og rigning eða súld með köflum síðdegis.





Skrifa athugasemd