September
Búðin á milli sanda
Búðin á milli sanda

16.09.2004 September

Verslunarrekstur á Fagurhólsmýri hættir

Næstu helgi mun verslunarrekstur á Fagurhólsmýri hætta og Versluninni milli sanda lokað. Ólafur Sigurðsson í Svínafelli og fjölskylda eiga verslunina og hafa leigt aðstöðu í verslunarhúsi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Ólafur gerði tilboð í verslunarhús Kask þar á staðnum ásamt íbúðarhúsi en samningar náðust ekki svo ekkert varð af kaupum. Ég opnaði verslunina 1.júní í fyrra og einnig gistingu í íbúðarhúsinu hér á Fagurhólsmýri segir Ólafur. Sumarið hefur gengið þokkalega en verslun í dag er erfið þar sem við kaupmenn fáum vöruna ekki á sambærilegu verði og lágvöruverslanirnar greiða fyrir þær. Verslunin var opin síðasta vetur en hann segir að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir verslun þar yfir veturinn .

Ólafur segir að gistiþjónustan á Fagurhólsmýri hafi gengið vel yfir sumarið og það sé eins og alltaf sé skortur á gistiplássi á sumrin hér í sýslunni.
Þótt Ólafur hætti á ,,Mýrinni? hefur hann nóg að gera, þar sem hann og fjölskylda hans reka myndarlega ferðaþjónustu ásamt sundlaug í Svínafelli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica