September
Ari Trausti í viðtali á Jökulsárlóni
Ari Trausti í viðtali á Jökulsárlóni
Ari Trausti í viðtali á Jökulsárlóni

15.09.2004 September

Góð auglýsing fyrir ferðaþjónustuna

Taka 22 tonna ísjaka á Jökulsárlóni og flutningur hans til Parísar hefur vakið mikla athygli ekki síst í Frakklandi. Fimm franskir blaðamenn fylgdust með þegar verið var að ná jakanum úr lóninu og koma honum á flutningabíl. Um morguninn áður ef jakatakan byrjaði bauð Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón blaðamönnum, ljósmyndurum og .fl í siglingu um lónið og var mikil ánægja með ferðina ásamt því sem fyrir augu bar. Ekki er nokkur vafi á að þetta ísjaka dæmi eins og það leggur sig verður mikil og góð auglýsing fyrir ferðaþjónustuna í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Einar Björn segir að sumarið núna sé það besta síðan hann byrjaði með ferðir um Jökulsárlón og er fjöldi gesta kominn eitthvað yfir 40 þúsund. Mest var aukning í júlí, tíminn var svipaður og í fyrra. Þetta gekk allt eins og best varð á kosið og svo var þessi dandalabíða í allt sumar, sagði Einar Björn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica