September
Krakkarnir í Nejaskóla í Norræna skólahlaupinu @Nesjaskóli
Krakkarnir í Nejaskóla í Norræna skólahlaupinu @Nesjaskóli
Krakkarnir í Nejaskóla í Norræna skólahlaupinu @Nesjaskóli

14.09.2004 September

Norræna skólahlaupið í veðurblíðunni í dag

Nemendur og starfsfólk Hafnar- og Nesjaskóla nýttu góða veðrið í dag til þátttöku í Norræna skólahlaupinu. Fyrirkomulag hlaupsins í Nesjaskóla er núna eins og undanfarin ár sem er þannig að þátttakendum er ekið í rútu inn að Meðalfellsrétt og þaðan er hlaupið heim í skóla. Þetta eru 2.5 km og stóðu þátttakendur sig með mikilli prýði þú eins og endranær Krakkarnir í Hafnarskóla hlupu um götur Hafnar. Hlaupið fer nú fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember. Þetta er í 20. skiptið sem Ísland tekur þátt í þessu samnorræna hlaupi og hefur frammistaða Íslends verið mjög góð miðað við frændþjóðir okkar, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.

Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan og áhersla á það lögð að allir verði með. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skólarnir viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica