Kartöflurnar farnar að brenna í pottinum
Slökkvilið Hornafjarðar var kallað að Bjarnarhól á Höfn um kl.20 í kvöld. Mikil bræla var í íbúð þar en ekki eldur. Húsráðandi sem var að elda kartöflur, hafði farið að heiman og kartöflurnar farnar að brenna í pottinum. Kona í næstu íbúð heyrði í reykskynjara og fann brunalykt og hringdi í neyðarlínuna. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri sagði að 14 slökkviliðsmenn hefðu verið mættir á stöðina til að fara á æfingu þegar útkallið kom svo þeir voru fljótir á staðinn. Ekki urðu neinar skemmdir á íbúðinni og slökkviliðið reykræsti íbúðina. Húsráðandi var ekki kominn heim í matinn þegar slökkviliðsmenn höfðu lokið sínum störfum í íbúðinni og ekki var vitað hvert hann hafði skroppið.
Slökkviliðið var að fara í sína árlegu æfingu út á Stokksnes þegar útkallið kom og þegar því starfi lauk héldu slökkviliðsmenn sinni áætlun með æfinguna.





Skrifa athugasemd