22 tonna ísjaki úr Jökulsárlóni til Parísar
Í morgun var 22 tonna ísjaki, 5 metra langur 2 ½ m á hæð og breidd, hífður upp úr Jökulsárlóni og settur á flutningabíl sem fer með hann til Reykjavíkur. Jakinn verður síðan fluttur með Eimskip til Rotterdam og þaðan landleiðina til Parísar þar sem hann verður tákn Íslands á sýningunni Hátíð menningar, vísinda og atvinnulífskynningar, sem fram fer í Frakkland, stendur í ½ mánuð með menningardagskrá í 25 liðum og fer fram um allt Frakkland. Sjálf sýningin, þar sem jakinn mun standa fyrir framan Vísindasafnið í miðborg Parísar, hefst 27.september. Þetta verður óskaplega mikil Íslandskynning, sú mesta sem fram hefur farið erlendis segir Sendiherra Íslands í París Sigríður Á. Snævarr, en hún og Ari Trausti Guðmundsson sjá um undirbúning fyrir sýninguna á samt Halldóri Ásgrímssyni verðandi Forsætisráðherra. Tuttugu íslensk fyrirtæki munu sýna þarna og kynna sig í sérstökum sal í safninu og verður ferðaþjónustan þar vel kynnt. Stórt skilti verður við ísjakann framan við safnið þar sem segir frá hvar hann var tekinn og hvað ísjaki er. Vörður verður allan sólarhringinn við jakann og gætir þess að enginn fari sér að voða við hann.
Þetta safn, Höll Uppgötvana, er sérstaklega þekkt fyrir að mikill meirihluti gesta eru skólabörn og kennarar þeirra sem koma frá öllu Frakklandi. Börnin eiga að læra að uppgötva náttúruna og þar er ísjakinn stórkostlegt dæmi um náttúru annars lands.
Sigríður segir að Frakkar séu heillaðir af íslenskri náttúru og tengi hana mikið við þá listsköpun sem fram fer á Íslandi.
Ísjakinn er í mínum huga tákn um alla þá dirfsku, orku og lífskraft sem býr í þjóðinni og hann er 100% ekta og alveg nýtt í París segir Sigríður. Það var Sigríður sem fékk þessa hugmynd að fá ísjaka á sýninguna og hún ásamt Ara Trausta höfðu samband við ýmsa góða aðila á Hornafirði og báðu um aðstoð og var hugmyndinni strax vel tekið.
Íslenski sýningarsalurinn er 300 fermetrar og ber heitið Eldur og Ís. Í anddyrinu verður Ari Trausti og hans menn með goshver sem þeir hafa hannað og í sýningarsalnum er myndvarpað kynningarmyndum frá Jökulsárlóni. Gólfið er eins og gengið sé á mosa, þar eru tvær keilur, úr rauðamöl og dökkri möl og í loftinu er varpað norðurljósum og m.fl.
Þetta er búið að vera alveg stórkostlegt allt og ég er Hornfirðingum afskaplega þakklát fyrir alla fyrirgreiðsluna og hér á Hótel Höfn fékk ég þann albesta humar sem ég hef smakkað og svo fallega framreiddan segir Sigríður. Hún kom fyrst til Hornafjarðar 1971 sem leiðsögumaður ferðahóps og segist þá hafa heillast algjörlega af Jökulsárlóninu, þeim ævintýraheimi, og það hafi ekkert breyst gegnum árin.





Skrifa athugasemd