September
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður (úr myndasafni)

13.09.2004 September

Ætlar að kynna sér starfsemi Náttúruskóla

Náttúruskólar eru skólar sem taka á móti skólakrökkum á mismunandi aldri og þar er þeim veitt náttúru- og umhverfisfræðsla. Þetta eru skólar sem nýta þjóðgarða og friðlönd til umhverfisfræðslu, þannig að hægt er að búa til skólaefni og stíla upp á 4. bekk grunnskóla. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli segir að búið sé að hluta til, að gera töluvert af námsefni hér á Íslandi en eftir er að finna hvernig það nýtist best. Ragnar er nýfarinn í þriggja mánaða námsleyfi til Danmerkur þar sem hann ætlar að kynna sér starfsemi Náttúruskóla. Ragnar segir að Danir séu framarlega í þessum náttúruskólum og telur hann að þetta sé einn af þeim vaxtarbroddum sem við getum tekið á og þá fyrir Suðurland, frá Hornafirði til Selfoss, til að taka á móti skólakrökkum og telur að við höfum þar mikið upp á að bjóða.

Ragnar ætlar að kynna sér hvernig landvörsluverkefni eru gerð í Danmörku, einnig fer hann til Svíþjóðar þar sem hann heimsækir þrjá þjóðgarða til að kynna sér hvernig Svíar reka sína þjóðgarða. Síðasta verkefni Ragnars í námsleyfinu verður að heimsækja norðmenn til að kynna sér rekstur á nýrri stofnun sem sér um eftirlit á þjóðgörðum og friðun. Hann segir að starf þjóðgarðsvarðar hér hafi mikið aukist og vaxið og sl. ár tók hann á móti 800 skólabörnum innlendum og erlendum sem komu í heimsókn í Skaftafell.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica