Búnir að sprengja um 77% af heildarlengd ganganna
Gröftur ganganna undir Almannaskarð hefur gengið vel að undanförnu. Í dag er búið að sprengja um 890 metra að sunnanverðu auk 5 metra að norðanverðu. Samtals er því búið að sprengja um 77% af heildarlengd ganganna sem verða um 1.150 metrar í bergi. Unnið er við vegfyllingar að sunnanverðu og byggingu vegskála að norðanverðu. Alls vinna nú um 35 manns við verkið auk þeirra jarðgangamanna sem eru í fríi (um 11 manns). Að kvöldi þegar myrkur hefur skollið á hafa Hafnarbúar tekið eftir ljósadýrðinni í kringum vinnubúðirnar við göngin en undanfarið hafa ljósadýrðirnar verið tvær því rétt austanmegin við göngin eru búðir vegna upptöku Bjólfskviðu sem m.a. fer þar fram.
Að sögn þeirra Bjólfskviðumanna hefur gangnagerðin ekki truflað upptöku kvikmyndarinnar.





Skrifa athugasemd